Mæðraverndarsvið vinnur að þróun og uppbyggingu mæðraverndar og stuðlar að samræmingu hennar með því að:
- vera faglegur bakhjarl við heilsugæsluna
- veita heilbrigðisstarfsfólki og almenningi faglega ráðgjöf, fræðslu og stuðning
- vinna að vísindarannsóknum í mæðravernd
- vinna með heilbrigðisyfirvöldum og heilsugæslu landsins að stefnumótun mæðraverndar á landsvísu
Fjölbreytt fræðsluefni um meðgöngu og fæðingu má finna á fræðslusíðunni.
Ítarlegar upplýsingar um fyrirkomulag mæðraverndar er að finna undir þjónusta á heilsugæslustöðvum.
Helstu verkefni mæðraverndarsviðs eru:
- innleiðing klínískra leiðbeininga um mæðravernd
- sérfræðiþjónusta fæðinga- og kvensjúkdómalækna á heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins
- símaráðgjöf
- stoðþjónusta, til dæmis viðtöl við verðandi foreldra sem vilja hætta að reykja
- gerð og dreifing fræðsluefnis fyrir fagfólk og almenning
- fæðingafræðslunámskeið
- vísindarannsóknir
- fagrýni
- að halda uppi samskiptum við kvennadeild LSH um sameiginleg málefni er varða mæðravernd
- samstarf við HÍ samkvæmt samstarfssamningi HH og HÍ
- þátttaka í fagráði Landlæknis um mæðravernd
Yfirlæknir: Þóra Steingrímsdóttir
Mæðraverndarsvið sér um dreifingu á bæklingum.