Heilsugæslan Hamraborg er hverfisstöð og þjónar íbúum Kópavogs sem búa vestan Digranesvegar að Bröttubrekku, norðan Fífuhvamms- og Nýbýlavegar.
Stöðin flutti í desember 2005 í nýtt húsnæði að Hamraborg 8 eftir að hafa verið staðsett í Fannborg 7-9 frá árinu 1980.
Starfsemi stöðvarinnar er fjölþætt þó mest fari fyrir lækningum, ungbarna- og mæðravernd.
Á stöðinni er veitt samfelld þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Tekist er á við öll heilsufarsleg vandamál og reynt að leysa úr þeim. Ef á þarf að halda er veitt ráðgjöf við val á sérfræðiþjónustu.
Þægilegt viðmót mætir þeim sem sækja þjónustu á stöðina og starfsfólk sýnir öllum virðingu, skilning og þolinmæði.