Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar stöðvarinnar annast heimahjúkrun fyrir íbúa Garðabæjar í samvinnu við lækna, starfsfólk Fjölskyldu- og heilbrigðisviðs Garðabæjar, ættingja og fleiri aðila.
Sjúkir sem dveljast heima geta fengið heimahjúkrun og á það við um alla aldurshópa.
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar annast þá hjúkrun sem þörf er á og hægt er að veita við þær aðstæður sem heimilið býður upp á.
Markmið heimahjúkrunar
Að gera sjúklingum og/eða öldruðum kleift að dveljast heima, við sem eðlilegastar og bestar aðstæður eins lengi og unnt er miðað við heilsufar og félagslegan aðbúnað í náinni samvinnu við þá og aðstandendur þeirra.
Fyrirkomulag
Deildarstjóri heimahjúkrunar tekur á móti beiðni um heimahjúkrun og metur þörf. Beiðni getur verið munnleg eða skrifleg.
Heimilislæknar, sjúkrastofnanir, hjúkrunarfræðingar, aðstandendur eða einstaklingurinn sjálfur getur óskað eftir heimahjúkrun. (sjá hér um hlutverk heimahjúkrunar)
Heimahjúkrun er veitt alla virka daga sem og um helgar.
Kvöldþjónusta er veitt frá kl. 20:00 til 23:00 alla daga vikunnar í samvinnu við Heilsugæslustöðvarnar í Hafnarfirði.
Helgarþjónusta er veitt frá kl. 8:00 til 13:00 laugardaga og sunnudaga í samvinnu við Heilsugæslustöðvar í Hafnarfirði.
Hjúkrunarfræðingur kemur í vitjun og metur hjúkrunarþörf einstaklingsins og skipuleggur þjónustuna í samvinnu við hann, heimilislækni og aðstandendur.
Heimahjúkrun er veitt án endurgjalds. Skjólstæðingi ber þó að útvega og greiða fyrir ýmis hjálpartæki og áhöld sem hann þarf á að halda samkvæmt reglum Tryggingastofnunar ríkisins.
Útskrift úr heimahjúkrun
Starfsfólk heimahjúkrunar metur hversu lengi skjólstæðingur þarfnast þjónustu þess. Þegar viðkomandi hefur náð andlegri og líkamlegri getu til að bjarga sér sjálfur hefst undirbúningur fyrir útskrift. Útskriftin er ákveðin í samráði við skjólstæðinginn, heimilislækni, aðstandendur og aðra stuðningsaðila. Lögð er áhersla á það að þótt einstaklingurinn sé formlega útskrifaður geti hann alltaf haft samband við starfsfólk heimahjúkrunar ef á þarf að halda.
Deildarstjóri heimahjúkrunar er Ásdís Geirsdóttir hjúkrunarfræðingur.