Heilsugæslan Seltjarnarnesi er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum á Seltjarnarnesi og Reykvíkingum í vesturbæ sunnan Hringbrautar, þar með talið háskólahverfi og Skerjafjörður.
Starfsemi stöðvarinnar er fjölþætt þó mest fari fyrir lækningum, ungbarna- og mæðravernd. Tekist er á við öll heilsufarsleg vandamál og reynt að leysa úr þeim.
Reynt er að veita samfellda þjónustu með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Ef á þarf að halda er veitt ráðgjöf við val á sérfræðiþjónustu.
Smáslysaþjónusta fer hér fram enda er á stöðinni slysa- og aðgerðastofa, þar sem auðvelt er að búa um og sauma sár, fjarlægja bletti og gera ýmsar fleiri smáaðgerðir. Bráðatilvik hafa alltaf forgang.
Heilsugæslustöðin á Seltjarnarnesi hóf starfssemi 1. apríl 1982 , var vígð formlega 14. maí 1982 og fagnar því 30 ára afmæli 2012.