Konum er boðið að panta tíma í krabbameinsskoðun til að taka leghálsstrok.
Heimilislæknir viðkomandi sér um skoðunina og þarf að láta vita fyrirfram þegar pantaður er tími að hann sé vegna krabbameinsskoðunar.
Sýni eru send á Krabbameinsleitarstöð og skoðuð þar. Svör eru síðan send til heimilislæknis sjúklings.