Heilsugæslan Miðbæ er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum í "Gamla miðbænum" vestan Snorrabrautar og norðan Hringbrautar.
Starfsemi stöðvarinnar er fjölþætt þó mest fari fyrir lækningum, ungbarna- og mæðravernd. Tekist er á við öll heilsufarsleg vandamál og reynt að leysa úr þeim. Reynt er að veita samfellda þjónustu með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga.
Ef á þarf að halda er veitt ráðgjöf við val á sérfræðiþjónustu. Smáslysaþjónusta er í boði enda er á stöðinni slysa- og aðgerðastofa, þar sem auðvelt er að búa um og sauma sár, fjarlægja bletti og gera ýmsar fleiri smáaðgerðir. Bráðatilvik hafa alltaf forgang.
Þeir sem sækja þjónustu á stöðina eiga rétt á þægilegu viðmóti og að starfsfólkið sýni þeim virðingu, skilning og þolinmæði. Til þess að samskiptin gangi vel upp þurfa skjólstæðingar stöðvarinnar að reyna að mæta starfsfólkinu á sama hátt.