Heilsugæslan Efstaleiti er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum á þjónustusvæði stöðvarinnar. Þjónustusvæðið afmarkast af Fossvogi í suðri, Miklubraut í norðri, Kringlumýrarbraut í vestri og Reykjanesbraut í austri.
Stöðin tók til starfa í húsnæði Borgarspítala 15. janúar 1981 og hét þá Heilsugæslan Fossvogi, en flutti síðan 15. október 1999 í núverandi húsnæði og heitir nú heilsugæslan Efstaleiti. Stöðin varð því 30 ára þann 15. janúar 2011.
Starfsemi stöðvarinnar er fjölþætt þó mest fari fyrir heimilislækningum, almennri hjúkrunarþjónustu, ungbarna- og mæðravernd.
Á stöðinni er veitt samfelld þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Tekist er á við öll heilsufarsleg vandamál og reynt að leysa úr þeim. Markmiðið er að stöðin sé fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu. Ef á þarf að halda er veitt ráðgjöf við val á sérfræðiþjónustu og annarri sérhæfðri þjónustu sem ekki er tiltæk innan stöðvarinnar.
Allar heilsufarsupplýsingar eru skráðar í rafrænar skjúkraskrár skjólstæðinga stöðvarinnar. Tilgangurinn er að auka öryggi og bæta þjónustuna. Ónæmisaðgerðir eru skráðar í miðlægan gagnagrunn Landlæknisembættisins. Læknaritarar sjá um skráningar og skjalavörslu.