Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu.
Þjónustan grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi.
Á síðum heilsugæslustöðvanna eru upplýsingar um þjónustuna sem veitt er á stöðvunum en einnig er starfrækt sérhæfð miðlæg þjónusta.
Nánar má lesa um megináherslur þjónustunnar í Þjónustustefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Veldu þína hverfisstöð úr listanum hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar um þjónustu hennar.
- Heilsugæslan Árbæ
- Heilsugæslan Efra-Breiðholti
- Heilsugæslan Efstaleiti
- Heilsugæslan Fjörður
- Heilsugæslan Garðabæ
- Heilsugæslan Glæsibæ
- Heilsugæslan Grafarvogi
- Heilsugæslan Hamraborg
- Heilsugæslan Hlíðum
- Heilsugæslan Hvammi
- Heilsugæslan Lágmúla
- Heilsugæslan Miðbæ
- Heilsugæslan Mjódd
- Heilsugæslan Mosfellsumdæmi
- Heilsugæslan Seltjarnarnesi
- Heilsugæslan Sólvangi
Ef þú ert ekki viss um hvaða stöð þú tilheyrir getur þú slegið inn heimilisfangið þitt (í þgf) á forsíðu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og fengið upplýsingar um það eða skoðað kort.
Heilsugæslan vinnur samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 (pdf-skjal), gæðaáætlun heilbrigðisráðuneytis frá 1999 og í framhaldi af því stefnumótun Heilsugæslunnar í Reykjavík, síðar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sem hófst árið 2000.