Lyfjasími:
Læknaritarar taka niður beiðnir um lyfjaendurnýjun frá kl. 9:00 til 11:00 alla virka daga í síma 594-0555. Eingöngu er hægt að fá þau lyf sem tekin eru að staðaldri og heimilislæknir þinn á stöðinni hefur áður ávísað.
Ekki er hægt að fá svefnlyf, sýklalyf eða sterk verkjalyf endurnýjuð í þessum síma.
Læknarnir ávísa síðan lyfjunum eftir að hafa metið beiðnina. Nauðsynlegt er að panta tíma hjá heimilislækni eða ræða við hann símleiðis ef hann hefur ekki ávísað umbeðnu lyfi áður eða langt er síðan hann hefur ávísað lyfinu. Eftirlit er nauðsynlegt við langtíma lyfjanotkun.
Þær lyfjapantanir sem berast á milli kl. 9:00 og 11:00 eru afgreiddar samdægurs.
Fjölnota lyfseðlar:
Mikið hagræði er að því fyrir alla aðila að nota fjölnota lyfseðla ef um samfellda lyfjanotkun er að ræða til langs tíma. Vinsamlega leitið eftir notkun á fjölnota lyfseðlum hjá heimilislækni. Þeir eru ekki ekki afgreiddir í lyfjasíma.