Heilsugæslan Miðbæ þjónar íbúum í póstnúmeri 101 vestan Snorrabrautar og norðan Hringbrautar.
Í afgreiðslu taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita, þegar mætt er í pantaðan tíma. Þess er eindregið óskað að forföll séu tilkynnt eins fljótt og hægt er, svo nýta megi tímana fyrir aðra.
Íbúar á þjónustusvæði stöðvarinnar geta skráð sig á stöðina. Skráning á stöðina og val á heimilislækni fer fram í afgreiðslu.
- Heilsugæslustöðin er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 18:00
- Almenn móttaka lækna og hjúkrunarfræðinga er frá kl. 8:00 til 16:00
- Símatími lækna er alla daga. Símatíma þarf að panta fyrir kl. 11:00
- Lyfjaendurnýjun frá kl. 10:00 til 12:00 alla virka daga í síma 585-2628.
- Síðdegisvakt frá kl. 16:00 til 18:00. Vaktinni er ætlað að sinna bráðum fljótleystum erindum sem þarfnast skjótrar úrlausnar, enda er viðtalstíminn styttri en venjulega. Komugjöld eru hærri eftir kl. 16:00.
- Yfirlæknir er Sigríður Dóra Magnúsdóttir
- Yfirhjúkrunarfræðingur er Jóhanna Eiríksdóttir
- Skrifstofustjóri er Guðrún J. Sigþórsdóttir
Ekki er gert ráð fyrir að læknar stöðvarinnar svari tölvupósti nema samið sé um það við viðkomandi lækni. Tölvupóstur er ekki öruggur boðskiptamiðill og ekki hægt að tryggja persónuvernd í slíkum samskiptum