Það er ekki nauðsynlegt að fá tilvísun frá heimilislækni áður en leitað er til annars sérgreinalæknis.
Engu að síður hvetjum við fólk til að hafa samráð við sinn heimilislækni ef þörf er að leita til annars sérgreinalæknis og getur heimilislæknir þá látið fylgja með upplýsingar sem varpa skýrara ljósi á vanda sjúklings.
Jafnframt hvetjum við sjúklinga til að biðja sérgreinalækna ávallt um að senda heimilislækni bréf þegar leitað er til þeirra, hvort sem það er fyrir milligöngu heimilislæknis eða ekki.