Heilsugæslan Hlíðum, Drápuhlíð 14-16, er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til kl. 16:00. Þá tekur síðdegisvaktin við til kl. 18:00 alla virka daga nema föstudaga.
Almenn afgreiðsla og tímapantanir í síma 585-2300.
Heilsugæslan Hlíðum er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að veita íbúum almenna læknis- og hjúkrunarþjónustu. Svæðið takmarkast af Snorrabraut og Kringlumýrarbraut og sjóa á milli, skoða kort.
Í afgreiðslu Heilsugæslunnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma.
Hjúkrunarfræðingar eru með móttöku alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00. Á þeim tíma er alltaf hægt er að fá samband við hjúkrunarfræðing í síma með fyrirspurnir og bráðaerindi.
- Lyfjaendurnýjanir eru alla virka daga frá kl. 9:00 til 12:00 í síma 585-2330
- Rannsóknastofan er opin alla virka daga frá kl. 10:00 til 11:30
- Yfirlæknir er Stefán Finnsson
- Yfirhjúkrunarafræðingur er Eva K. Hreinsdóttir
- Skrifstofustjóri er Kristjana Sigmundsdóttir
Ef um bráð veikindi eða slys er að ræða er hægt að ná sambandi við lækni/hjúkrunarfræðing samdægurs og án fyrirvara. Bráðatilvik hafa alltaf forgang.
Utan ofangreinds opnunartíma er bent á Læknavaktina, Smáratorgi 1, Kópavogi. sími 1770. Læknavaktin er opin virka daga frá kl.17:00 til 23:30 og um helgar og hátíðisdaga frá kl. 9:00 til 23:30. Ef um alvarleg slys eða lífshættuleg bráð veikindi er að ræða, skal hafa samband við neyðarlínuna í síma 112.