Ungbarnavernd

Ungbarnavernd

Í ungbarnaverndinni er fylgst reglubundið með vexti og þroska barnanna.

Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið.

Fyrsta læknisskoðun er við 6 vikna aldur. Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og heimilislækni eða barnalækni til skólaaldurs.

Skoðanir og bólusetningar:

Aldur Hver skoðar Hvað er gert
< 6 vikna  Hjúkrunarfr.  Heimavitjanir 
6 vikna  Hjúkrunarfr. og læknir   Skoðun 
9 vikna  Hjúkrunarfr.  Heimavitjun eða skoðun á heilsugæslustöð 
3 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
5 mánaða  Hjúkrunarfr.  Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
6 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C 
8 mánaða  Hjúkrunarfr.  Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C 
10 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun 
12 mánaða  Hjúkrunarfr.  Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
18 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun og bólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu, PEDS Mat foreldra á þroska barna 
2 1/2 árs  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun 
3 ára  Tannlæknir  Forvarnarskoðun - tanneftirlit. Ókeypis skoðun hjá tannlæknum sem vinna í umboði Sjúkratrygginga Íslands. Nauðsynlegt að skoðun fari fram áður en barnið nær fjögurra ára aldri.  
4 ára  Hjúkrunarfr.  Skoðun, sjónpróf, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki og stífkrampa í einni sprautu 

Ráðgjöf af ýmsu tagi meðal annars um brjóstagjöf, mataræði og slysavarnir er mikilvægur þáttur ungbarnaverndarinnar og hefðbundnar bólusetningar eru framkvæmdar í skoðunum.


Heilsugæslustöð

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Sólvangur

Sólvangsvegi 2, 220 Hafnarfirði
Sími: 550-2600, Fax: 550-2601
Netfang:
solvangur@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

Virka daga kl. 8:00 - 17:00. Kvöldmótaka kl. 16:00 - 20:00 á virkum dögum.

Sjá staðsetningu á korti


Strætó - Sólvangur

Leiðarnúmer Strætó:
Fara á www.bus.is

Hvað viltu gera? - Sólvangi



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;