Efstaleiti

Efstaleiti

Heilsugæslan Efstaleiti er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum á þjónustusvæði stöðvarinnar, sem afmarkast af Miklubraut í norðri, Fossvogi í suðri, Kringlumýrarbraut í vestri og Reykjanesbraut í austri.  Þeir sem búa á  þjónustsvæði stöðvarinnar geta skráð sig á stöðina. Eftir að skráning hefur átt sér stað er kallað eftir sjúkraskrám frá þeirri heilsugæslustöð/heimilislækni þar sem viðkomandi var áður á skrá og þá einungis samkvæmt skriflegu umboði.

Í afgreiðslu heilsugæslustöðvarinnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að tilkynna sig hjá móttökuriturum þegar mætt er í pantaðan tíma.

  • Yfirlæknir: Gunnar Helgi Guðmundsson
  • Yfirhjúkrunarfræðingur: Guðbjörg Guðbergsdóttir
  • Skrifstofustjóri: Anna Erla Guðbrandsdóttir

Síðdegisvakt frá kl. 16:00 til 18:00 alla virka daga.
Símatími hjúkrunarfræðinga er frá kl. 8:00 til 11:30 alla virka daga.
Lyfjapantanir eru í síma 585-1829 frá kl. 8:00 til 11:30 alla virka daga.

 

13.01.2011

Heilsugæslan Efstaleiti 30 ára

Heilsugæslan Efstaleiti - áður Heilsugæslan Fossvogi hóf starfsemi í húsnæði Borgarspítalans 15. janúar 1981. Í upphafi voru starfsmennirnir 6 en í dag eru þeir 26. Á stöðina eru nú skráðir rúmlega 8.000 einstaklingar og samskipti á síðasta ári voru um 45 þúsund.

 


Heilsugæslustöð

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Efstaleiti

Efstaleiti 3, 103 Reykjavík
Sími: 585-1800, Fax: 585-1801
Netfang:
efstaleiti@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

Virka daga kl. 8:00 - 16:00. Síðdegisvakt kl. 16:00 - 18:00 alla virka daga.

Sjá staðsetningu á korti


Strætó- Efstaleiti

Leiðarnúmer Strætó:
Fara á www.bus.is

Hvað viltu gera? -Efstaleiti



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;