Heilsugæslu í skólum er sinnt af hjúkrunarfræðingum og læknum stöðvarinnar. Hjúkrunarfræðingar hafa fastan viðverutíma í skólunum.
Skólaheilsugæsla er m.a. fólgin í reglulegum heilsufarsathugunum og ónæmisaðgerðum, þjónustu við gæslunemendur, heilbrigðisfræðslu og ráðgjöf, eftirliti með húsakynnum og aðbúnaði auk þess sem hjúkrunarfræðingar í skólunum sinna sjúkra- og slysaþjónustu að vissu marki á skólatíma.
Skólar er tilheyra stöðinni eru, Breiðholtsskóli, Seljaskóli og Ölduselsskóli.