Í ungbarnaverndinni er fylgst reglubundið með vexti og þroska barnanna.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing stöðvarinar fljótlega eftir að heim af fæðingardeild er komið.
Fyrsta læknisskoðun er við 6 vikna aldur. Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og heimilislækni eða barnalækni til skólaaldurs.
Skoðanir og bólusetningar:
| Aldur | Hver skoðar | Hvað er gert |
|---|---|---|
| < 6 vikna | Hjúkrunarfr. | Heimavitjanir |
| 6 vikna | Hjúkrunarfr. og læknir | Skoðun |
| 9 vikna | Hjúkrunarfr. | Heimavitjun eða skoðun á heilsugæslustöð |
| 3 mánaða | Hjúkrunarfr. og læknir | Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. |
| 5 mánaða | Hjúkrunarfr. | Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. |
| 6 mánaða | Hjúkrunarfr. og læknir | Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C |
| 8 mánaða | Hjúkrunarfr. | Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C |
| 10 mánaða | Hjúkrunarfr. og læknir | Skoðun |
| 12 mánaða | Hjúkrunarfr. | Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. |
| 18 mánaða | Hjúkrunarfr. og læknir | Skoðun og bólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu, PEDS Mat foreldra á þroska barna |
| 2 1/2 árs | Hjúkrunarfr. og læknir | Skoðun, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun |
| 3 ára | Tannlæknir | Forvarnarskoðun - tanneftirlit. Ókeypis skoðun hjá tannlæknum sem vinna í umboði Sjúkratrygginga Íslands. Nauðsynlegt að skoðun fari fram áður en barnið nær fjögurra ára aldri. |
| 4 ára | Hjúkrunarfr. | Skoðun, sjónpróf, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki og stífkrampa í einni sprautu |
Ráðgjöf af ýmsu tagi meðal annars um brjóstagjöf, mataræði og slysavarnir er mikilvægur þáttur ungbarnaverndarinnar og nauðsynlegar bólusetningar eru framkvæmdar í skoðunum.