Allar þungaðar konur sem búsettar eru á þjónustusvæði stöðvarinnar svo og þær sem eiga heimilislækni á stöðinni eru velkomnar í meðgöngueftirlit hjá ljósmæðrum og læknum stöðvarinnar.
Markmiðið með mæðravernd er að stuðla að farsælli meðgöngu með faglegri umönnun, fræðslu og stuðningi.
Æskilegt er að þungaðar konur komi í fyrstu skoðun 10-12 vikum eftir síðustu blæðingar en velkomið er að hafa samband við lækni eða ljósmóður fyrr ef óskað er.
Fjöldi mæðraskoðana fer eftir aðstæðum, algengt er 8-10 skipti. Faðir eða annar stuðningsaðili og eldri systkini eru velkomin með.
Hægt er að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður. Móttökuritarar taka niður nafn, kennitölu og símanúmer og haft verður samband eins fljótt og hægt er.
Skoðanir og rannsóknir vegna mæðraverndar eru ókeypis, en greitt er fyrir eftirskoðun.
Æskilegt er að eftirskoðun fari fram 6-8 vikum eftir fæðingu. Þá er einnig rætt um getnaðarvarnir. Samráð er haft við sérfræðinga í fæðingarhjálp ef þörf krefur.