Á stöðinni starfa hjúkrunarfræðingar, ljósmæður og sjúkraliði. Náin samvinna er við lækna stöðvarinnar.
Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður á heilsugæslustöðinni starfa við:
- ung-og smábarnavernd
- mæðravernd
- heilsugæslu eldri borgara
- skólaheilsugæslu
- hjúkrunarmóttöku
Hægt er að ná sambandi við vakthafandi hjúkrunarfræðing frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga í síma 513-1500.
Ef skilaboð eru áríðandi og þola ekki bið er mikilvægt að taka það skýrt fram.
Vitjanir hjúkrunarfræðinga vegna ungbarnaeftirlits eru bundnar við þjónustusvæði hverrar heilsugæslustöðvar.
Í hjúkrunarmóttöku er veitt eftirfarandi þjónusta:
- ráðgjöf
- símaþjónusta
- sáraskiptingar
- bólusetningar og sprautugjafir
- skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi
Framkvæmdar eru eftirfarandi rannsóknir og mælingar:
- mælingar á blóðþrýstingi
- lungnaþolspróf (öndunarmælingar)
- hjartalínurit
Einn af hjúkrunarfræðingum stöðvarinnar sinnir heilsugæslu eldri borgara og er tengiliður stöðvarinnar við Heimaþjónustu Reykjavíkur.
Hægt er að ná sambandi við hjúkrunarfræðinginn alla daga nema miðvikudaga í síma 513-1500.