Læknisþjónusta

Læknisþjónusta

Á heilsugæslustöðinni starfa sjö sérfræðingar í heimilislækningum.

Læknarnir hafa bókaða tíma á stöðinni og er hver tími venjulega 15-20 mínútur.  Nauðsynlegt er að panta tíma og oftast fæst tími innan 1-2 daga.

Í áríðandi tilvikum er alltaf hægt að fá þjónustu og ef heimilislæknirinn er ekki viðlátinn sinnir vakthafandi læknir eða hjúkrunarfræðingur erindinu. 

Ef þú telur þig vera í þörf fyrir skjótari úrlausn áttu að fá samband við vakthafandi hjúkrunarfræðing sem ráðleggur þér.

Heimilislæknar stöðvarinnar fara í vitjanir til sjúklinga sem ekki eiga heimangengt af heilsufarsástæðum ef þeir meta það nauðsynlegt.  Læknisvitjanir utan hverfis geta verið erfiðleikum bundnar.

Námslæknar eru stundum starfandi á stöðinni. Þeim er leiðbeint af sérfræðingum stöðvarinnar og leita til þeirra við lausn vandamála, þegar þörf krefur.

Barnalæknir tekur þátt í ungbarnavernd stöðvarinnar.

Náin samvinna er við hjúkrunarfræðinga stöðvarinnar.

Tölvupóstþjónusta: Eins og staðan er í dag er ekki gert ráð fyrir að læknar stöðvarinnar svari tölvupósti í vinnutíma sínum. Tölvupóstsendingar eru á ábyrgð sendanda og óvíst með öllu að tölvupósti sé svarað nema sérstaklega sé samið um það við viðkomandi lækni.


 


Heilsugæslustöð


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Mjódd

Þönglabakka 6, 109 Reykjavík
Sími: 513-1500, Fax: 513-1501
Netfang:
mjodd@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

Virka daga kl. 8:00 - 16:00. Síðdegisvakt alla virka daga kl. 16:00 - 18:00.

Sjá staðsetningu á korti


Strætó - Mjódd

Leiðarnúmer Strætó:
Fara á www.bus.is


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;