Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslustöðinni starfa við:
- Heimahjúkrun (sjá hér um hlutverk heimahjúkrunar)
- Heilsugæslu eldri borgara
- Hjúkrunarmóttöku
- Mæðravernd
- Ung- og smábarnavernd
- Skólaheilsugæslu
- Sykursýkismóttöku
Hjúkrunarmóttaka
Hjúkrunarmóttaka er alla virka daga frá kl 8:00 til 16:00. Hjúkrunarfræðingur veitir fagleg ráð og leiðbeiningar. Hjúkrunarfræðingar vinna í nánu samstarfi við lækna stöðvarinnar.
Í hjúkrunarmóttöku er m.a. veitt eftirfarandi þjónusta:
- Ráðgjöf
- Smáslysaþjónusta
- Sárameðferð
- Saumatökur
- Ónæmisaðgerðir og sprautugjafir
- Ferðamannabólusetningar og fræðsla fyrir ferðamenn
- Blóðþrýstingseftirlit
Símatími
Símaráðgjöf og leiðbeiningar í síma 594-0400 frá kl. 8:00 til 16:00.