Allar verðandi mæður í Garðabæ eiga kost á mæðravernd í Heilsugæslunni Garðbæ.
Fyrirkomulag
Ljósmæður og heimilislæknar stöðvarinnar annast mæðravernd á Heilsugæslunni í samvinnu við sérfræðing í fæðingarhjálp og kvensjúkdómum (Sigrún Arnardóttir). Náið samstarf er við hjúkrunarfræðinga í ungbarnavernd og fjölskylduráðgjafa stöðvarinnar.
Mæðravernd hefst 10 vikum eftir síðustu blæðingar.
Tímapantanir eru hjá móttökuriturum Heilsugæslunnar í síma 520-1800.
Konur geta haft samband við ljósmóður eða heimilislækni til að fá frekari upplýsingar.
Komur á stöð.
Mæðraverndin byggist á viðtölum, skoðunum, fræðslu og ráðgjöf.
Í fyrstu komu (við 10 vikur) er viðtal við ljósmóður.
Þar er meðal annars kynnt tilhögun mæðraverndar og sú þjónusta sem í boði er fyrir verðandi móður/foreldra. Einnig er útbúin mæðraskrá, teknar blóðprufur, mældur blóðþrýstingur og veitt ráðgjöf.
Önnur koma (við 14 - 15 vikur) er viðtal við heimilislækni.
Fjöldi heimsókna/koma verðandi móður/foreldra í mæðravernd er einstaklingsbundin.
Í öllum komum eru læknar stöðvarinnar til samráðs ef talin er ástæða til.
Ómskoðun / fósturgreining.
Öllum konum er boðið upp á ómskoðun / fósturgreiningu við 12 og 20 vikur.
Konum 35 ára og eldri er boðin ómskoðun/fósturgreining við 10-13 vikur.
Ljósmæður eru Svava Gústavsdóttir og Kristín Blöndal Magnúsdóttir.