Læknar

Læknar

Fastráðnir heimilislæknar að stöðinni eru sjö í 5,7 stöðugildum. Læknarnir eru allir sérfræðingar í heimilislækningum.

Heimilislæknarnir starfa samkvæmt tímabókunarkerfi þar sem viðtalstímar eru pantaðir fyrirfram.  Hver viðtalstími er 20 mín. Sérhver læknir hefur nokkra lausa tíma í byrjun hvers dags, svokallaða „rauða tíma“, sem ætlaðir eru í tilvikum þar sem þörf er á  bráðri aðkomu læknis. Eingöngu er unnt að bóka í slíka tíma samdægurs.
Ef sjúklingur á þess ekki kost að fá tíma hjá heimilislækni sínum þá er sjúklingi velkomið að bóka tíma hjá öðrum lækni á heilsugæslustöðinni í það skiptið.

Símaþjónusta lækna er fyrst og fremst til að svara stuttorðum fyrirspurnum og veita einfaldar ráðleggingar og upplýsingar um niðurstöður rannsókna. Sjúklingar geta beðið móttökuritara um að taka niður óskir um að endurnýja lyf sem notuð eru að staðaldri, hafi sjúklingur áður fengið lyfið hjá læknum Heilsugæslunnar.

Heimilislæknarnir fara í vitjanir í heimahús eftir mat á aðstæðum hverju sinni.  Þeir taka þátt í ung- og smábarnavernd,  mæðravernd, skólaheilsugæslu og krabbameinsleit hjá konum.

Heilmilislæknar Heilsugæslunnar Garðabæ

Áslaug Gunnarsdóttir, sérfræðingur í heimilislækningum (80% starfshlutfall)
Ásmundur Jónasson, sérfræðingur í heimilislækningum (100% starfshlutfall)
Bjarni Jónasson, yfirlæknir, sérfræðingur í heimilislækningum (100% starfshlutfall)
Bryndís Benediktsdóttir, sérfræðingur í heimilislækningum (20% starfshlutfall)
Gerður A. Árnadóttir, sérfræðingur í heimilislækningum (70% starfshlutfall)
Guðrún Hreinsdóttir, sérfræðingur í heimilislækningum (100% starfshlutfall)
Jón Steinar Jónsson, sérfræðingur í heimilislækningum (100% starfshlutfall)
Að öllu jöfnu er einnig starfandi læknakandidat og/eða námslæknir í Heilsugæslunni.

Sérgreinalæknar
Ingólfur Einarsson, barnalæknir (í ung- og smábarnavernd)
Þóra Steingrímsdóttir, sérfræðingur í kvensjúkdómum (í mæðravernd).

Vaktþjónusta:
Utan opnunartíma stöðvarinnar er bent á Læknavaktina, Smáratorgi 1, Kópavogi. Sími 1770. Læknavaktin er opin virka daga frá kl.17:00 til kl.23:30 og um helgar og hátíðisdaga frá kl.9:00 til kl.23:30.


Heilsugæslustöð

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Garðabær

Garðatorgi 7, 210 Garðabæ
Sími: 520-1800, Fax: 520-1819
Netfang:
gardabaer@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

Virka daga kl. 8:00 - 17:00. Síðdegismóttaka alla virka daga kl. 16:00 - 18:00.

Sjá staðsetningu á korti


Strætó - Garðabær



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;