Ung- og smábarnavernd

Ung- og smábarnavernd

Hlutverk Ung- og smábarnaverndarsviðs Þróunarstofu er að þróa, leiða og samræma heilsuvernd ung- og smábarna í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld og heilsugæsluna á landsvísu. Hefðbundin ung- og smábarnavernd fer fram á heilsugæslustöðvum og hefur það markmið að styðja við heilsu og þroska barna frá fæðingu til 6 ára aldurs.

Sviðsstjóri er Sesselja Guðmundsdóttir.

Helstu verkefni:

  • Þróun og endurskoðun verklags- og vinnuleiðbeininga fyrir ung- og smábarnavernd.
  • Fræðsla og símenntun fagfólks heilsugæslunnar sem sinnir ung- og smábarnavernd, til dæmis með námskeiðum og fræðsludögum.
  • Fræðsla og gerð fræðsluefnis fyrir foreldra um efni sem snertir ung- og smábörn, til dæmis uppeldi.
  • Upplýsingar til starfsfólks heilsugæslunnar með viðeigandi efni, meðal annars með virkum tölvusamskiptum og upplýsingum á heimasíðu.
  • Söfnun upplýsinga um heilsufar barna og starfsemi ung- og smábarnaverndar og úrvinnsla þeirra.
  • Sérhæfð ung- og smábarnavernd fyrir börn sem eru fædd fyrir 32 vikna meðgöngu og/eða með fæðingarþyngd undir 1500 gr.
  • Ýmis sérverkefni, svo sem brjóstagjöf og næring, slysavarnir barna, svefn og svefnvandamál og agi og uppeldi.

Á sviðinu starfa auk sviðsstjóra fagfólk í ýmsum verkefnum. Unnið er í nánu samstarfi við annan fagfólk. 

Ítarlegar upplýsingar um fyrirkomulag ung- og smábarnaverndar er að finna undir þjónusta á heilsugæslustöðvum.


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Þróunarstofa heilsugæslunnar

Þönglabakki 1, 109 Reykjavík
Sími: 585-1350, Fax: 585-1370
Netfang:
throunarstofa@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

alla virka daga kl. 8:20 til 16:15

Sjá staðsetningu á korti


Strætó - Mjódd

Leiðarnúmer Strætó:
Fara á www.bus.is


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;