Öll ungbarnavernd fyrir þjónustusvæði Heilsugæslunnar Efstaleiti fer fram á stöðinni. Fylgst er reglubundið með vexti og þroska barnanna.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunafræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til fjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið.
Fyrsta læknisskoðun er við 6 vikna aldur. Síðan er reglubundið eftirlit hjá hjúkrunarfræðingi og heimilislækni til skólaaldurs.
Skoðanir og bólusetningar:
Aldur
Hver skoðar
Hvað er gert
< 6 vikna
Hjúkrunarfr.
Heimavitjanir
6 vikna
Hjúkrunarfr. og læknir
Skoðun
9 vikna
Hjúkrunarfr.
Heimavitjun eða skoðun á heilsugæslustöð
3 mánaða
Hjúkrunarfr. og læknir
Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu.
5 mánaða
Hjúkrunarfr.
Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu.
6 mánaða
Hjúkrunarfr. og læknir
Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C
8 mánaða
Hjúkrunarfr.
Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C
10 mánaða
Hjúkrunarfr. og læknir
Skoðun
12 mánaða
Hjúkrunarfr.
Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu.
18 mánaða
Hjúkrunarfr. og læknir
Skoðun og bólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu, PEDS Mat foreldra á þroska barna
2 1/2 árs
Hjúkrunarfr. og læknir
Skoðun, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun
3 ára
Tannlæknir
Forvarnarskoðun - tanneftirlit. Ókeypis skoðun hjá tannlæknum sem vinna í umboði Sjúkratrygginga Íslands. Nauðsynlegt að skoðun fari fram áður en barnið nær fjögurra ára aldri.
4 ára
Hjúkrunarfr.
Skoðun, sjónpróf, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki og stífkrampa í einni sprautu
Veitt er ráðgjöf af ýmsu tagi m.a. um brjóstagjöf, mataræði, slysavarnir, svefn, aga og uppeldi. Einnig eru hefðbundnar bólusetningar framkvæmdar í ungbarnaskoðunum.