Tannvernd

Tannvernd

Mikilvægt er að foreldrar geri sér grein fyrir mikilvægi munnhirðu frá því fyrsta tönnin er sýnileg og læri réttu handtökin við munnhirðu.

Á fræðslusíðunum er bent á fjölbreytt fræðsluefni um tannvernd.

Áherslur tannverndar í ung- og smábarnavernd eru:

5 mánaða skoðun

Bókin um barnatennurnar kynnt og afhent foreldrum og þeir beðnir um að tileinka sér innihald hennar og huga vel að ráðleggingum varðandi tannvernd sem þar er að finna.               

6 og 8 mánaða skoðun

Sýnt er hvernig best er að hafa barnið vel skorðað í útafliggjandi stöðu við tannhirðu og að magn flúortannkrems þekur 1/4 af litla fingursnögl barns.
Mælt með að draga úr næturgjöfum; aldrei ávaxtasafa í pelann, hvorki á nóttu né degi því sykurinn skemmir tennurnar og ávaxtasýra eyðir tannglerungi.          

10 mánaða skoðun

Lögð áhersla á að gefa einungis vatn að drekka ef barn vaknar upp á nóttunni og að bursta tennur kvölds og morgna með 0,1 - 0,15% flúortannkremi.        

12 mánaða skoðun

Minnt á holla millimálabita og á kalda vatnið við þorsta.
Nauðsyn þess að bursta tennur með mjúkum tannbursta og flúortannkremi, tvisvar sinnum á dag er ítrekuð. Bent á kosti  "foreldrastólsins" við munnhirðu og mikilvægi þess að halda vörum/kinnum frá meðan burstað er.        

18 mánaða skoðun

Munnskoðun er framkvæmd og byrjandi eða lengra komnar tannskemmdir skráðar. Ef munnhirðu barns er ábótavant er skýringa leitað, leiðbeint um tannvernd og foreldri vísað með barnið til tannlæknis.         

2 1/2 árs skoðun

Munnskoðun er framkvæmd og byrjandi eða lengra komnar tannskemmdir skráðar. Ef munnhirðu barns er ábótavant er skýringa leitað, leiðbeint um tannvernd og foreldri vísað með barnið til tannlæknis.         
Rætt um fyrstu heimsókn til tannlæknis, nafn tannlæknis barnsins skráð og 3 ára forvarnarskoðun kynnt. Farið yfir handtök við munnhirðu og sýnt að magn flúortannkrems þekur nú litla fingursnögl barns.          

3 ára forvarnarskoðun

3 ára börnum stendur til boða forvarnarskoðun hjá tannlækni, foreldrum að kostnaðarlausu

4 ára skoðun

Í 4 ára skoðun er aflað upplýsinga um hvort barnið hefur farið í forvarnarskoðun og nafn tannlæknis skráð. Þeim sem ekki hafa nýtt sér 3-ára forvarnarskoðun er vísað til tannlæknis. Ef munnhirðu barns er ábótavant er skýringa leitað, leiðbeint um tannvernd og foreldri vísað með barnið til tannlæknis.  

6 ára og eldri

Eftir að barnið nær skólaaldri eiga 6 ára og 12 ára börn kost á forvarnarskoðun hjá tannlækni, foreldrum að kostnaðarlausu.

Grunnskólabörnum (6, 12 og 15 ára) stendur til boða flúorskolun tanna á vegum heilsugæslunnar á skólatíma.

 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

6H heilsunnar

Heilsuvefurinn 6H

Læknisþjónusta

Læknisþjónusta Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Mæðravernd

Mæðravernd

Ungbarnavernd

Ungbarnavernd

Skólaheilsugæsla

Skólaheilsugæsla

Heimahjúkrun

Heimahjúkrun


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;