Hjúkrunarfræðingar sem starfa í heilsugæslu eru í nánu samstarfi við aðra heilbrigðisstarfsmenn innan veggja hverrar heilsugæslustöðvar. Þetta eru ljósmæður, heimilislæknar, sálfræðingar og barnalæknar.
Hjúkrunarvaktin er einnig í nánu samstarfi við hjúkrunarfræðinga sem sinna öðrum þáttum í starfsemi heilsugæslunnar eins og ung- og smábarnavernd, heilsuvernd eldri borgara og heilsuvernd skólabarna.
Hjúkrunarfræðingar eru auk þess í aðstöðu til að hafa samráð við fagfólk sem sinnir sérhæfðum málum eða starfa á sérstökum starfsstöðvum innan og utan heilsugæslunnar. Má þar nefna: Þroska- og hegðunarstöð, Þróunarstofu, Göngudeild sóttvarna og heimahjúkrun. Þjónustu þeirra er til dæmis hægt að nálgast með tilvísunum hjúkrunarfræðinga.