Heilsugæslan Efra-Breiðholti er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum Efra-Breiðholts. Stöðin tók til starfa 1978 í Asparfelli 12 og flutti að Hraunbergi 6 í apríl 1990.
Starfsemi stöðvarinnar er fjölþætt þó mest fari fyrir lækningum, ungbarna- og mæðravernd. Tekist er á við öll heilsufarsleg vandamál og reynt að leysa úr þeim. Reynt er að veita samfellda þjónustu með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga.
Ef á þarf að halda er veitt ráðgjöf við val á sérfræðiþjónustu. Smáslysaþjónusta fer hér fram enda er á stöðinni slysa- og aðgerðastofa, þar sem auðvelt er að búa um og sauma sár, fjarlægja bletti og gera ýmsar fleiri smáaðgerðir.
Bráðatilvik hafa alltaf forgang.
Þeir sem sækja þjónustu á stöðina eiga rétt á þægilegu viðmóti og að starfsfólkið sýni þeim virðingu, skilning og þolinmæði. Til þess að samskiptin gangi vel þurfa skjólstæðingar stöðvarinnar að reyna að mæta starfsfólkinu á sama hátt.