Eftirfarandi þjónusta er veitt á meðgöngu:
- Skoðanir og viðtöl
- Fræðsla til foreldra
- Símaráðgjöf
- Blóð- og þvagrannsóknir
- Fósturgreining með ómun (fer fram á Kvennadeild Landsspítala Háskólasjúkrahúss)
Í fyrstu skoðun er viðtal við ljósmóður. Rætt er um heilbrigða lifnaðarhætti og um tilgang, framkvæmd og skipulag mæðraverndarinnar. Teknar eru blóðprufur, mældur blóðþrýstingur og hlustað eftir hjartslætti fósturs.
Í hverri mæðraskoðun er fylgst með almennri líðan konunnar. Hún er vigtuð, mældur er blóðþrýstingur, athugað hvort eggjahvíta eða sykur finnist í þvagi, lega og stærð fósturs er metin og hlustað er eftir fósturhjartslætti. Einnig er veitt fræðsla og ráðgjöf eins og við á hverju sinni.