Reglur um meðferð umsókna vegna vísindarannsókna innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Tilgangur
Tilgangur þessara reglna er að stuðla að markvissri rannsóknastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) þar sem áhersla er lögð á rannsóknir sem efla heilsugæsluna og þekkingargrunn hennar; stuðla að styrkri samvinnu HH og Háskóla Íslands (HÍ) í samræmi við samning þessara aðila og stuðla að því að HH verði í ríkari mæli virkur samstarfsaðli í vísindastarfi strax við mótun rannsóknar auk þess að vera vettvangur rannsókna og gagnasafn.
Vísindanefnd HH og HÍ
Vísindanefnd HH og HÍ (Vís-HH) starfar innan Þróunarstofu Heilsugæslunnar.
- Hlutverk Vís-HH er að leggja fræðilegt mat á umsóknir og gefa umsögn um þær. Allar umsóknir um vísindarannsóknir innan HH skal senda til Vís-HH til umsagnar. Nefndin forgangsraðar þeim umsóknum sem hún metur hæfar samkvæmt ákveðnu verkferli, samanber Fylgiskjal II (pdf-skjal).
- Nefndin metur siðferðileg álitamál sem hluta af heildarmati á verkefninu.
- Nefndin er umsagnaraðili og getur hafnað rannsóknum. Heimili nefndin rannsókn skilar hún áliti sínu til lækningaforstjóra og hjúkrunarforstjóra HH, sem leggja mat á rekstrarlegar forsendur fyrir hverri rannsókn og afgreiða umsóknir aftur til Vís-HH til endanlegrar afgreiðslu.
- Þegar niðurstaða lækningaforstjóra og hjúkrunarforstjóra liggur fyrir svarar Vís-HH umsækjanda.
- Vís-HH heldur skrá um allar rannsóknir sem eru framkvæmdar á vettvangi HH.
Ferli rannsóknabeiðna
Stjórnendur HH leitast við að varðveita sjálfstæði einstakra starfsstöðva innan sinna vébanda og styðja við frumkvæði og áhuga einstaklinga innan HH. Stjórnendur starfsstöðva HH eru því í lykilhlutverkum varðandi skipulag og umfang rannsókna og þróunarverkefna hver á sinni stöð. Ferli umsókna fer því eftir umfangi verkefnisins sem hér segir.
- Allar umsóknir um vísindarannsóknir innan HH skulu sendar til Vís-HH til umsagnar.
- Sé rannsókn bundin við eina starfsstöð innan HH og hafi hlotið samþykki viðeigandi yfirmanna hennar þarf Vís-HH ekki að samþykkja rannsóknina.
- Ef rannsókn nær til fleiri en einnar starfseiningar HH þarf hún alltaf að vera metin hjá Vís-HH.
- Ætíð skal liggja fyrir samþykki stjórnenda viðkomandi stöðva áður en umsókn er samþykkt af Vís-HH og lækningaforstjóra og hjúkrunarforstjóra.
- Mat á innsendri umsókn skal að öllu jöfnu lokið innan 6 vikna frá því að öll umbeðin gögn hafa verið send inn. Ef sýnt þykir að afgreiðsla umsóknar muni dragast lengur en þann tíma mun Vís-HH útskýra það fyrir umsækjendum með góðum fyrirvara.
- Óheimilt er að hefja rannsókn áður en tilskilin leyfi liggja fyrir.
Form umsókna
Umsókn skal skilað á rafrænu formi. Þar skulu að öllu jöfnu koma fram sömu upplýsingar og krafist er af Vísindasiðanefnd og rannsóknasjóðum. Nákvæmar leiðbeiningar um gerð umsókna eru í Fylgiskjali I (pdf-skjal).
Kostnaður og greiðslur
Í umsókn skulu umsækjendur gera sérstaka grein fyrir fjárhagsáætlun og fjármögnun rannsóknarinnar. Þar er lögð áhersla á að gerð sé grein fyrir kostnaði, hvort sem hann er greiddur sérstaklega af rannsóknarfé, eða leggst með beinum eða óbeinum hætti á HH og/eða HÍ. HH og HÍ geta gert kröfu til rannsakanda um að greiða kostnað sem hlýst af rannsókninni og lendir á þessum aðilum.
Komi sérstakar tekjur til vegna aðildar að rannsókn skulu þær renna í sérstakan vísinda og þróunarsjóð HH. Reglur um úthlutun úr sjóðnum skulu samþykkktar af framkvæmdastjórn HH.
Forgangsröðun
Eftir mat á vísindalegu og samfélagslegu gildi rannsókna er tekið tillit til eftirfarandi atriða við forgangsröðun ef þörf krefur:
- Til starfsfólks HH, en verkefni þeirra njóta forgangs.
- Til námsfólks við HÍ og þess þrönga tímaramma sem það hefur til að ljúka verkefnum sínum.
- Til doktors- og meistaranámsnema sem eru að vinna að rannsóknarverkefnum, enda séu slík rannsóknarstörf í samræmi við samning HH og HÍ.
Afgreiðsla og heimildir til rannsóknastarfa
Vís-HH gefur umsóknum eftirfarandi umsögn:
- Samþykkt/mælt með.
- Samþykkt en mælt með endurmati skv. ábendingum eða athugasemdum.
- Hafnað.
Auk þess gefur nefndin þeim rannsóknum sem hún mælir með stig frá 1 til 5 vegna forgangsröðunar, þar sem 5 vegur mest.
- Vís-HH sendir umsögn sína til lækningaforstjóra og hjúkrunarforstjóra til samþykktar. Vís-HH svarar umsækjanda síðan með bréfi.
- Verði breyting á tímaáætlun rannsóknar skal umsækjandi leggja fram nýja áætlun til Vís-HH til samþykktar
- Verði mælt með rannsókn með breytingum eða athugasemdum skal Vís-HH óska eftir svarbréfi eða endurbættri áætlun innan tiltekinna tímamarka, frá dagsetningu umsagnar sinnar. Berist ekki endurbætt áætlun innan þess tíma verður litið svo á að umsækjandi hafi hætt við rannsóknina.
Reglur um meðferð umsókna vegna vísindarannsókna innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (pdf-skjal)