Höfuð smábarna er enn hlutfallslega stórt miðað við líkamsstærð. Þau eru því í meiri hættu á að festa höfuðið, t.d. þegar þau reyna að ýta sér í gegnum gat eða rifu, en þau sem eldri eru. Sérstaklega getur það verið hættulegt ef barnið nær ekki fótfestu. Í dag eru í gildi staðlar fyrir leiktæki sem eiga að tryggja að öll göt séu stærri en svo að barn geti fest höfuð sitt þar.
Víða í Evrópu hafa verið settar reglur sem minnka hættu á slysum vegna barnafatnaðar. Ekki eru slíkar reglur í gildi hér á landi, en einhverjir framleiðendur barnafatnaðar hérlendis hafi tekið mið af þeim reglum sem eru í gildi í Evrópu. Mikilvægt er að upplýsa almenning um mögulegar hættur, því ekki er óalgengt að börn séu höfð í heimasaumuðum og prjónuðum fötum. Hætta á hengingum er aðallega vegna reima í hettum og borða í hálsmálum.
Slysavarnir
- Fylgist vel með barninu í klifurleikjum.
- Gætið að því að hálsmál, hettur eða reimar festist ekki í leiktækjum.
- Gætið að því að barnið leiki sér ekki með snúrur, bönd og hangandi lykkjur.
- Verið viss um að föt barnsins þrengi ekki að hálsi barnsins. Fjarlægið reimar og bönd úr fatnaði.