Drukknun

Drukknun

Þegar barn á þessum aldri lendir undir yfirborði vatns hefur það ekki þroska til þess að reyna að komast upp úr því aftur. Flestum börnum finnst gaman að því að leika sér í og við vatn og hafa hvorki ástæðu né þekkingu til þess að hræðast það. Þau eru jafnvel byrjuð að nota vaðlaugar, svo hættan á drukknunum hefur aukist. Ílát með vatni í, s.s. plastfötur, getur valdið hættu á drukknun. Börn geta náð að toga sig upp og dottið ofan í föturnar. Á þessum aldri hafa börn ekki líkamlegan þroska til þess að komast upp úr aftur á öruggan hátt.

Dýpt vatns þarf ekki að vera meira en 2-5 cm. til þess að barn drukkni í því. Jafnvel pollar eða uppsafnað regnvatn í t.d. vaðlaug eða setlaug getur reynst banvænt.

Slysavarnir

  • Skiljið aldrei barn eftir eitt í baði, ekki eitt augnablik.
  • Treystið ekki eldri systkinum til þess að gæta barns sem er í baði. Þau missa athyglina auðveldlega og gleyma fljótt ráðleggingum.
  • Fylgist vel með börnunum ef þau fá að leika sér í vatni.
  • Tæmið alltaf vaðlaugar, fötur og garðkönnur eftir notkun.
  • Látið barn aldrei leika sér eitt nálægt pollum eða vatni.

Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;