Á stöðinni eru starfandi 6 sérfræðingar í heimilislækningum.
Læknarnir hafa bókaða viðtalstíma á stöðinni, sem venjulega eru um 20 mínútur hver tími. Nauðsynlegt er að panta tíma, þegar ekki er um skyndileg veikindi eða slys að ræða. Oftast fæst tími innan 1 - 2ja daga.
Í bráðatilvikum er alltaf hægt að ná til læknis eða hjúkrunarfræðings samdægurs.