Geta barnsins

Geta barnsins
Ungbörn eru algjörlega háð foreldrum eða öðrum varðandi þarfir sínar og öryggi. Þau hafa enga stjórn á umhverfi sínu og þurfa á fullorðnum einstaklingi að halda til að tryggja heilbrigði sitt og öryggi.
Áður en börn ná þeim þroska að framkvæma meðvitaðar hreyfingar eins og að teygja sig eftir hlut eða að velta sér, eru öll slys sem þau lenda í á ábyrgð forráðamanna þeirra. Það er hlutverk þeirra að gæta öryggi barnsins. Það skiptir máli að vera viðbúin því að börn geta stundum meira en maður heldur.
Hafa ber í huga að börn eru ekki leikföng. Það er munur á því hvort leikið er við börnin eða leikið með þau. Þau þola t.d. ekki að þeim sé hent upp í loft eða þau hrist.

Ungbörn 0-5 mánaða:

  • Eru með þunna húð - húðin er allt að 15 sinnum þynnri en húð fullorðinna.
  • Eru með stórt og þungt höfuð miðað við líkamsstærð.
  • Eru með höfuðkúpu sem á enn eftir að vaxa saman og eru því mjúkir blettir á henni.
  • Eru með óþroskuð bein.
  • Fyrstu mánuðina hafa börn litla eða enga stjórn á hreyfingum sínum en geta þó iðað, sparkað og baðað út handleggjum og þannig hugsanlega fært sig úr stað.
  • Frá 3 mánaða aldri geta ungbörn farið að velta sér sjálf þegar þau eru látin liggja á baki eða maga (ath. sum börn eru einungis nokkurra daga gömul þegar þau ná að velta sér á meðan þau hreyfa útlimina).
  • Frá 3 mánaða aldri geta þau farið að teygja sig eftir hlutum og grípa um þá.

 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;