Heilsugæslan Árbæ er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum Árbæjar, Seláss, Ártúnsholts og Grafarholts.
Starfsemi stöðvarinnar er fjölþætt þó mest fari fyrir lækningum og ungbarna- og mæðravernd. Tekist er á við öll heilsufarsleg vandamál og reynt að leysa úr þeim. Reynt er að veita samfellda þjónustu með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Ef á þarf að halda er veitt ráðgjöf við val á sérfræðiþjónustu. Smáslysaþjónusta fer fram á stöðinni og bráðatilvik hafa alltaf forgang.