Allar verðandi mæður búsettar á þjónustusvæði Heilsugæslunnar Árbæ eru velkomnar í mæðravernd. Markmiðið er að stuðla að farsælli meðgöngu með faglegri umönnun, fræðslu og stuðningi.
Æskilegt er að konur komi í fyrstu skoðun 10 - 12 vikum eftir síðustu blæðingar en velkomið er að hafa samband við lækni eða ljósmóður fyrr ef óskað er. Fjöldi mæðraskoðana fer eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Faðir eða annar stuðningsaðili og eldri systkini eru velkomin með.
Heimilislæknar og ljósmæður stöðvarinnar sjá um mæðraverndina. Samráð er haft við sérfræðinga í fæðingarhjálp þegar þörf er á.
Ómskoðun er gerð hjá öllum þunguðum konum í 18. - 19. viku meðgöngu á Kvennadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss.
Eftirskoðun fer fram 6 - 8 vikum eftir fæðingu. Þá er m.a. rætt um getnaðarvarnir.
Hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður. Móttökuritarar taka niður skilaboð og haft verður samband eins fljótt og hægt er.