Greiningarþjónusta Þroska- og hegðunarstöðvar (ÞHS)
Þjónusta ÞHS nær fyrst og fremst til höfuðborgarsvæðisins, en einnig til annarra landsvæða ef ekki býðst sambærilegt úrræði á heimaslóð. Vísa má börnum í greiningu ef vísbendingar eru um frávik í þroska eða hegðun sem hamlar þeim í daglegu lífi og hafa mætti áhrif á með viðeigandi aðgerðum. Annars vegar er hægt að vísa börnum í frumgreiningu og hins vegar í nánari greiningu.
Frumgreining er í boði fyrir börn undir grunnskólaaldri þegar engin formleg athugun hefur áður verið gerð á þeim þroskaþáttum sem áhyggjur eru af. Tilefni tilvísunar geta verið áhyggjur foreldra eða fagfólks af frávikum í vitsmuna-, mál-, eða félagsþroska eða einkennum í hegðun, líðan eða tengslum.
Nánari greining býðst börnum ef formleg frumgreining hefur gefið sterkar vísbendingar um athyglisbrest með eða án ofvirkni (ADHD) og skyldar raskanir. Aldursviðmið er frá um 5 og allt að 12 ára. Ef áhyggjur eru fyrst og fremst af öðrum frávikum, svo sem greindarskerðingu, málþroskaröskun eða sértækum námserfiðleikum heyrir málið undir sérfræðiskrifstofu skóla og á ekki að vísa til Þroska- og hegðunarstöðvar.
Eftir frumgreiningu sem sýnt hefur einkenni athyglisbrests, ofvirkni og skyldra frávika í hegðun eða líðan barna er mikilvægt að sjá til þess að markviss íhlutun hefjist án tafar. Í alvarlegum tilfellum má samtímis vísa beint í nánari greiningu á ÞHS. Í miðlungs- og vægari tilfellum skal einungis senda tilvísun eftir að endurmat í kjölfar íhlutunar hefur farið fram. Sjá nánari upplýsingar um verklag við skimun, íhlutun og tilvísanir vegna ADHD, texti og flæðirit.
Ef óvissa er um nauðsyn greiningar eða hvort Þroska- og hegðunarstöð er rétta úrræðið, má leita samráðs eða ráðgjafar í síma 585 1350 eða í tölvupósti
Allar beiðnir um greiningu þurfa að berast frá fagfólki á sérstökum eyðublöðum ásamt skriflegu leyfi foreldra. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar má nálgast hér.