Þegar líða tekur á meðgönguna er tímabært að ræða um og undirbúa fæðinguna. Hvers er að vænta og hvernig getur þú undirbúið þig?
Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma til að ræða um væntanlega fæðingu til að geta átt jákvæða fæðingarreynslu og til að auka líkur á góðri heilsu að fæðingu lokinni. Fyrsta skrefið er að fræðast um eðlilegt ferli fæðingarinnar og skoða þína hugsanir og tilfinningar gagnvart henni. Gott er að deila upplýsingum og tilfinningum með maka og ræða æskilega fæðingarreynslu og það sem skiptir þig máli. Gott er að ræða um viðhorf þín við ljósmóður og fæðingarlækni.
Góð næring og hreyfing eru mikilvæg til að undirbúa líkamann fyrir komandi fæðingu. Hvíld og slökun er líka mikilvæg heilsunnar vegna. Fundist hafa tengsl á milli vandaðs mataræðis og góðrar útkomu úr tvíburameðgöngu, til dæmis eru tengsl á milli vandaðs mataræðis hjá móður og fæðingarþyngdar barnanna.
Foreldrafræðsla
Heilsugæslan býður upp á sérstök foreldrafræðslunámskeið fyrir verðandi tvíbura- og fleirburaforeldra. Fjallað er um tvíburameðgöngu og fæðingu tvíbura. Farið er í gegnum eðlilegt fæðingarferli, keisaraskurð og fleira og ræddar eru aðferðir til að takast á við hríðir í fæðingu. Einnig er fjallað um brjóstagjöf tvíbura, umönnun barnanna og hvers má vænta fyrstu vikurnar eftir fæðingu. Gott er að fara á slík námskeið snemma á meðgöngu til þess að hafa úthald og orku í gegnum námskeiðið. Einnig hefur heilsugæslan staðið fyrir sérstökum uppeldisnámskeiðum fyrir foreldra ungra barna. Námskeiðin heita Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar. Á þeim er lögð áhersla á að kenna foreldrum aðferðir til að skapa æskileg uppeldisskilyrði sem líklegust eru til að skila árangri í lífi barns. Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér mikilvæga eiginleika og læri færni sem nýtist því til frambúðar. Jafnframt er dregið úr líkum á ýmsum erfiðleikum í framtíðinni.