Breytingar á meðgöngu

Breytingar á meðgöngu

Líkamlegar breytingar

Á meðgöngu verða líkamlegar breytingar mest áberandi. Þær verða vegna áhrifa hormóna sem valda því að líkaminn hefur undirbúning fyrir það sem framundan er, fæðingu tvíbura og brjóstagjöf. Meðal breytinga má nefna breytingu á blóðrás, stækkun legvöðvans, það teygist á legböndum og brjóstin stækka. Þessar breytingar gerast mun hraðar hjá konum sem ganga með tvíbura og það er meira álag á líkama hennar. Við 32ja vikna meðgöngu tvíbura getur stærð legins verið jafnmikil og við 40 vikna meðgöngu einbura. Markmið líkamans með breytingunum er að hlúa að hinu vaxandi lífi. Líkaminn lagar sig að breyttu hlutverki og konan finnur stöðugt fyrir þessum umskiptum.

Tilfinningalegar/Andlegar breytingar

Meðgangan hefur mismunandi áhrif á konur. Sumum líður aldrei betur en aðrar finna meira fyrir óþægindum. Fylgikvillar þungunar geta haft áhrif á andlega líðan. Verðandi foreldrar verða tilfinningalega næmari og finna jafnvel fyrir geðsveiflum sem eru þó algengari hjá konum. Þær þurfa aukinn stuðning, ástúð og hlýju. Meðgangan er ánægjutími fyrir flesta en neikvæðar hugsanir og áhyggjur geta einnig gert vart við sig. Vangaveltur geta verið um það hvernig meðgangan og fæðingin komi til með að ganga, hvernig brjóstagjöf gangi með tvö börn, hvernig  hægt er að tengjast tveimur börnum og elska samtímis.

Lesa meira:

Andleg líðan á meðgöngu
Andleg líðan á meðgöngu (pdf-skjal)


Aðlögun að foreldrahlutverki/Tengslamyndun

Meðgangan er undirbúningstími fyrir foreldrahlutverkið. Á meðgöngu, meðan börnin er að vaxa og þroskast, eru verðandi foreldrar jafnframt að vaxa inn í hið nýja/breytta móður og föðurhlutverk. Verðandi foreldrar sjá oft sjálfan sig og hvort annað í nýju ljósi og sú hugmynd að makinn er að verða foreldri getur verið eitthvað sem þarf að venjast. 

Tengslamyndun við börnin hefst strax á meðgöngu. Þegar verðandi foreldrar strjúka yfir kúluna og hugsa til tvíburanna, tala við þá og syngja aukast tenglsin. Suma verðandi foreldra dreymir börnin í móðurkviði og reyna að sjá þau fyrir sér. Þegar foreldrar finna hreyfingar barnanna aukast tengslin enn meir. Á meðan flestir foreldrar tengjast einu barni eru verðandi tvíburaforeldrar að tengjast tveimur börnum og það er ekki sjálfgefið að það reynist öllum einfalt. Þetta er ferli sem getur tekið langan tíma. 

Breytingar á daglegu lífsmynstri - Mataræði

Góð næring er mikilvæg fyrir heilsu verðandi tvíburamóður og ófæddra barna hennar. Öll næring sem konan fær er einnig næring fyrir börnin og hefur áhrif á þroska og vöxt þeirra. Næringin berst með blóðrás konunnar til fylgjunnar og þaðan til barnanna.

Þörfin fyrir næringu og orku eykst talsvert. Konur sem ganga með tvíbura þurfa um 2700-4000 kaloríur á dag. Dagleg orkuþörf er um 300 kkal meiri en mæðra sem ganga með einbura og um 600 kkal meiri en kvenna sem ekki eru barnshafandi.

Mikilvægt er að velja holla, næringarríka og fjölbreytta fæðu og borða reglulega, helst 3-5 máltíðir á dag. Prótein er mikilvægt fyrir uppbyggingu vefja fóstursins og því ættu konur sem ganga með tvíbura að borða fæðu sem er rík af próteinum.
Próteinrík matvæli eru t.d. magurt kjöt, fiskur, mjólkurvörur, baunir, hnetur og egg. Þörfin fyrir lífsnauðsynlegar fitusýrur eykst á meðgöngu tvíbura. Þessar fitusýrur eru m.a. nauðsynlegar við myndun taugakerfis. Þær er m.a. að finna í olíum eins og sólblómaolíu og kornolíu og í matvælum eins og eggjarauðu, kjöti og feitum fiski. Mælt er með að taka 1 tsk. af þorskalýsi á meðgöngu.

Þörf fyrir járn eykst verulega, einkum eftir 12. viku meðgöngunnar. Þá er mælt með að konur sem ganga með tvíbura taki inn 60 mg af járni. Þörf fyrir önnur steinefni, t.d. kalk, virðist einnig vera meiri á tvíburameðgöngu en hana ætti að vera hægt að uppfylla með hæfilegri neyslu á mjólk og mjólkurvörum.



Almennt er mælt með að konur sem ganga með tvíbura taki inn hefðbundin fjölvítamín. Ef lýsi er tekið inn samhliða er æskilegt að velja fjölvítamín sem ekki inniheldur A og D vítamín.

Eftirfarandi tafla sýnir þyngdaraukningu tvíburamæðra (kg/viku) sem stuðlar að eðlilegri fæðingarþyngd tvíburabarna og minnstum fylgikvillum á meðgöngu og í fæðingu.

Æskileg þyngdaraukning tvíburamæðra á viku er reiknuð eftir líkamsþyngdarstuðli:

 Líkamsþyngdar- stuðull (BMI)   Fyrir 20 vikur  20 til 28 vikur   eftir 28 vikur  Þyngdaraukning alls
 Of grönn  (< 18,5)  0,5 – 1,0 kg  0,5 – 1 kg  0,5 kg   21,5 – 27,5 kg  
 Í kjörþyngd (18,6-25)  0,5 – 1,0 kg   0,5 – 1 kg   0,5 kg   17 – 24,5 kg   
 Of þung (25,1-30)   0,5 kg   0,5 kg  0,5 kg   16,5 – 20,5 kg 
 Of feit (> 30,1)  0,5 kg   0,5 kg   0,5 kg  13 – 17,5 kg  

Lesa meira:

Matur og meðganga

Bæklingur: Matur og meðganga: fróðleikur fyrir konur á barneignaaldri (pdf-skjal)

Bæklingurinn er til á eftirfarandi tungumálum auk íslensku: albönsku, arabísku, ensku, pólsku, rússnesku, spænsku og thailensku. Á vef  Lýðheilsustöðvar má líka sjá bæklinginn og þar er útdráttur úr honum á ýmsum tungumálum.

 

Júní 2009. Yfirfarið í júní 2011.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;