Meðgönguvernd

Meðgönguvernd

Markmið meðgönguverndar er að:

  • stuðla að heilbrigði móður og barna                                                              
  • veita faglega umönnun, stuðning og ráðgjöf
  • greina áhættuþætti og bregðast við þeim
  • veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu

Meðgönguvernd fer fram á öllum heilsugæslustöðvum og er þjónustan ókeypis. Meðgönguverndin er í höndum ljósmæðra í samvinnu við heilsugæslulækna. Samvinna er á milli þeirra og fæðingarlækna. Reynt er að sjá til þess að sama ljósmóðirin annist konuna/verðandi foreldra  alla meðgönguna. Í meðgönguverndinni gefst tækifæri til umræðna og spurninga (t.d. um líðan, mataræði, hreyfingu, skimanir á meðgöngu, fósturrannsóknir, þjónustu sem er í boði á meðgöngu, val á fæðingarstað, fæðinguna, bjargráð í fæðingu, fæðingarorlof, brjóstagjöf og fleira).

Í fyrsta viðtali eru almennar upplýsingar um heilsufar skráðar ásamt fyrri meðgöngu-og fæðingarsögu ef við á. Boðið er uppá skimanir fyrir blóðleysi, blóðflokkun, lifrarbólgu B, HIV, rauðum hundum og sárasótt. Einnig eru boðnar upplýsingar um fósturskimun. Blóðþrýstingur er mældur ásamt hæð og þyngd, þvag skoðað og almenn líðan metin. Upplýsingarnar eru skráðar í mæðraskrá  sem fylgir konunni alla meðgönguna og í fæðinguna.

Frá 12. viku er hægt að hlusta eftir hjartslætti fóstranna og eftir 20. viku er stærð legsins mæld, frá lífbeini að legbotni (sjá rauðar örvar á mynd).

Fjöldi skoðana er 12-14. Þjónustan í meðgönguverndinni er einstaklingsmiðuð og þarfir konunnar/verðandi foreldra eru metnar hverju sinni.
Eldri systkini eru velkomin með í meðgönguverndina.


Þær konur sem þurfa sérstaklega náið eftirlit eru í skoðun á Landspítala. Það á við um eftirfarandi:

  • Konan hefur sögu um eitthvað af þessu: Fyrirburafæðingu, vaxtarseinkun fósturs, háþrýsting, meðgöngueitrun eða meðgöngusykursýki.
  • Belgjaskil milli tvíbura eru þunn eða engin. (Lesa meira um belgjaskil á  síðunni Tvíburameðganga)


Hér koma töflur sem sýna fjölda skoðana sem eru í boði hjá ljósmóður, heimilislækni, fæðingarlækni og fjölda ómskoðana:

Tvíburar: Þykk belgjaskil 

 Vikur:   11-14  16-18  19-20    22  26  28  30  32   33  34   35   36  37  38
 Ómun  x    x        x    x      x    
 Ljósmóðir  x  x    x  x  x  x  x    x  x  x  x  x
 Fæðingarlæknir        x        x            
 Heilsugæslulæknir    x          x      x    x    

 

Tvíburar: Þunn eða engin belgjaskil

 Vikur:  11-14  16-18  19-20  22 24  26 28  30  32  33  34  35  36  37  38 
 Ómun  x  x  x      x    x    x      x    
 Ljósmóðir  x  x    x  x  x  x  x  x  x  x  x  x  x  x
 Fæðingarlæknir  x      x  x    x    x    x    x    x

 
Lesa meira:

Vinnuleiðbeiningar í tvíburameðgöngu


 


Júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.

Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;