Ómskoðun og fósturskimanir eru í boði á meðgöngu og er val verðandi foreldra. Fósturskimanir eru í boði við
11. – 14. viku og 20 vikna meðgöngu.
Á meðgöngu tvíbura eru auk þess í boði reglubundnar ómskoðanir til þess að meta vöxt barnanna. Í þeim skoðunum er lega barnanna einnig skoðuð en það skiptir máli undir lok meðgöngunnar þegar taka þarf ákvörðun um fæðingarmáta. Ráðgjöf um fósturskimanir er veitt af ljósmæðrum og læknum í mæðravernd og hægt er að fá upplýsingar um fósturrannsóknir á vef Landsspítalans www.landspitali.is undir Kvenna- og barnasvið/Fósturgreiningardeild.
Lesa meira:
Fósturrannsóknir
Fósturrannsóknir (pdf skjal)
Bæklingur: Fósturskimun og fósturgreining á meðgöngu (pdf skjal).
Júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.