27. vika og fram að fæðingu

27. vika og fram að fæðingu

Tvíburarnir


            • Vaxa og þroskast
            • Safna holdi
            • Neglur og hár vaxa
            • Heyra og sýna viðbrögð við hávaða
            • Eru næm fyrir ljósi og blikka auga
            • Gera öndunaræfingar
            • Hiksta
            • Sofa lengri dúra í einu
            • Mjaka sér til en sparka minna


Tvíburarnir í móðurkviði halda áfram að vaxa og þroskast. Þyngdin eykst mest á áttunda og níunda mánuði. Höfuðið sem stækkaði mest í byrjun meðgöngunnar og var tæplega helmingur af stærð barnsins er nú undir lok meðgöngunnar einn fjórði af stærð barns. Fram að 28. viku hafa tvíburarnir vaxið eins og einburar gera en eftir 32. viku meðgöngu vaxa tvíburar örlítið hægar. Á þessu tímabili hefst fitusöfnun og tvíburarnir safna holdi og nú getur mismunur komið fram í vexti þeirra. Tvíburar fæðast ekki endilega jafnþungir og meðalþyngd þeirra við fæðingu er örlítið minni en hjá einburum. Neglur vaxa framyfir fingurgóma og höfuðhárin lengjast. Tvíburarnir heyra nú þegar og þekkja hljóðin frá líkama móðurinnar, hjartslátt hennar og öndun. Þeir heyra einnig hvað um er að vera utan móðurlífs og sýna viðbrögð. Stundum hreyfa þeir sig í takt við tónlist. Þeir þekkja vel taktinn og hljómfallið í rödd móður sinnar og læra einnig að þekkja raddir þeirra sem eru nálægt móðurinni, t.d. rödd föður. Þeir eru næmir fyrir ljósi og blikka auga. Það er talið að á þessum tíma sé meðvitund vöknuð og hæfileikinn til að muna. Tvíburarnir gera nú öndunaræfingar og geta fengið hiksta. Það eru dægursveiflur í hreyfingum þeirra, þeir sofa nú lengri dúra í einu. Minna verður um spörk sökum plássleysis og á þessum tíma fer að þrengja svolítið að tvíburunum og þeir liggja þétt saman.

Móðirin

            • Legið þenst út
            • Óþægindi í grind og baki vegna álags
            • Hreyfigeta minnkar
            • Vökvasöfnun/bjúgur
            • Verður andstutt og getur fundið fyrir mæði
            • Brjóstsviði
            • Breytt svefnmynstur
            • Útferð frá leggöngum
            • Finnur spörk eða mjak og hnoð barnanna
            • Væntanleg fæðing kemur æ oftar upp í hugann
            • Undirbýr sig fyrir fæðingu og foreldrahlutverkið

Legið þenst út og heldur áfram að stækka í takt við börnin sem stækka. Álag á grind og bak getur valdið óþægindum eða verkjum og haft áhrif á hreyfigetuna. Flestar konur finna fyrir vökvasöfnun/bjúg í einhverjum mæli. Vökvasöfnun er oftast mest áberandi á höndum og fótum. Flestar konur verða andstuttar þegar líður á meðgönguna. Þetta stafar af því að legið þrýstir á þindina og konunni finnst hún ekki geta fyllt lungun af lofti. Brjóstsviði gerir nú oft vart við sig hafi hann ekki þegar verið til staðar. Svefnmynstur breytist oft á þessum tíma meðgöngunnar. Konan sefur léttar og vaknar oft upp á nóttunni. Ein kenningin er sú að Móðir náttúra létti svefninn til þess að undirbúa væntanlega móður að vakna til barnanna. Þetta gerist fyrir tilstilli hormónabreytinga. Hin verðandi móðir er því strax farin að æfa móðurhlutverkið! Líkamlegar breytingar þ.e. umfang legsins og barnanna hefur þau áhrif að erfitt getur verið að láta fara vel um sig og sofa í löngum dúrum, auk þess sem salernisferðir geta verið tíðar. Síðustu vikur meðgöngunnar getur útferð frá leggöngum verið töluverð. Eðlileg útferð er hvítleit eða glær, hún er þunn, lyktarlaus og án kláða eða sviða. Móðirin finnur hreyfingar barnanna sem mjak og hnoð. Hún fylgist með daglegum hreyfingum þeirra sem gefa henni tækifæri til þess að vera í nánum tengslum við þau og eru merki um góða líðan þeirra.

tightVæntanleg fæðing kemur æ oftar upp í hugann. Eftirvænting og tilhlökkun við það að sjá börnin, fá þau í fangið og snerta þau er ofarlega í huga. Einnig geta áhyggjur af því hvernig fæðingin muni ganga og hvort allt verði í lagi með börnin gert vart við sig.  Tilhugsunin um fjölskyldu er mikil. Væntanleg móðir og faðir eru farin að undirbúa fæðingu barnanna og foreldrahlutverkið. Samræður fara að snúast um börnin, hægt er að spjalla við þau í móðurkviði og syngja fyrir þau. 

Lesa meira:

fyrsta tímabil 0-12 vikur
annað tímabil 13-26 vikur

 

Júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.


 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;