13-26 vikur

13-26 vikur

Tvíburarnir

            • Hafa tekið á sig greinilega mannsmynd
            • Líffærin stækka og þroskast
            • Andlitsdrættir skýrast
            • Allur líkaminn er þakinn fíngerðu dúnkenndu fósturhári
            • Hár og augabrúnir vaxa
            • Litfrumur í hárum myndast
            • Opna augun í 26. viku
            • Hreyfingar verða kröftugri
            • Lengd frá hvirfli til ilja við 24 vikur er um 30 sm
            • Þyngdin við 24 vikur er um 650 g

 

Tvíburarnir halda áfram að vaxa og hafa tekið á sig greinilega mannsmynd. Líffærin sem höfðu myndast öll á fyrsta tímabili eru nú að stækka og þroskast og andlitsdrættir eru að skýrast. Allur líkami þeirra er þakinn fíngerðu dúnkenndu fósturhári sem hverfur fyrir fæðingu. Það eru komin hár á koll tvíburanna og fíngerðar augabrúnir. Í 16. – 20. viku hefst myndun litfruma í hárunum. Augnlokin sem huldu augun opnast í 26.viku. Tvíburarnir hreyfa sig svipað að degi og nóttu og þau sofa aldrei nema nokkrar mínútur í einu. Hreyfingar þeirra verða kröftugri þegar líður á meðgönguna. Þau rétta og kreppa fæturna og æfa fótaspörk. Í leginu er nóg rými fyrir þau til þess að hreyfa sig og skipta um stöðu. Þau njóta þess að vera vaggað í legvatninu með hreyfingum móðurinnar. Fóstrin vaxa mest á lengdina í þriðja til fimmta mánuði, u.þ.b. 5 sm. á mánuði. Eftir 20.viku getur þyngd og stærð verið mjög mismunandi. Nú  er höfuðið orðið einn þriðji af stærð barnanna. Frá 24. viku eru tvíburarnir orðnir einstaklingar sem hafa hvor sitt svefn og vökumynstur og hreyfa sig mismunandi.

Móðirin

tight

            • Brjóstin halda áfram að stækka
            • Legið stækkar hratt. Kúlan kemur í ljós
            • Togverkir
            • Brjóstsviði
            • Ógleðin á undanhaldi
            • Þreytan á undanhaldi
            • Meiri orka
            • Finnur fyrstu hreyfingar tvíburanna


 


Brjóstin halda áfram að stækka
og legið stækkar í takt við börnin sem vaxa ört.  Kúlan kemur í ljós. Þessar breytingar kalla á breytingu á klæðaburði.  Togverkir í nára geta enn gert vart við sig. Brjóstsviði er kvilli sem margar konur finna fyrir á meðgöngu. Ástæðan er meðal annars sú að stækkandi leg þrýstir á maga móðurinnar og loft og magasýrur berast upp í vélindað. Á þessu tímabili meðgöngunnar líður móðurinni jafnan vel;  ógleðin er oftast horfin, þreytan er á undanhaldi og orkan er meiri. Sumum konum finnst þeim jafnvel aldrei líða eins vel og um miðbik meðgöngunnar. Fyrstu hreyfingarnar barnanna birtast í fyrstu eins og loftbólur eða ólga í maganum en smám saman skynjar móðirin greinileg spörk og hreyfingar sem gefa henni staðfestingu á lífinu sem vex innra með henni. Móðir sem gengur með tvö börn finnur oftast hreyfingar fyrr en móðir sem gengur með eitt barn og hreyfingarnar eru meiri. Þegar fram líða stundir getur móðirin farið að greina mismunandi hreyfingar milli barnanna. Sumar verðandi tvíburamæður finna hreyfingar í 16. viku, aðrar ekki fyrr en í 20. viku og hvortveggja er alveg eðlilegt.


tightPabbinn fer ef til vill að finna fyrir vaxandi ábyrgðartilfinningu og fjölskylduhugsunin fer að gera vart við sig. Þungunin verður raunverulegri því í lok þessa tímabils getur pabbinn þreifað á hreyfingum barnanna.

Lesa meira:

fyrsta tímabil 0-12 vikur
þriðja tímabil 27. vika og fram að fæðingu

 
 
Júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.


 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;