Fóstrin
- Hröð frumuskipting
- Fylgjan myndast
- Legvatn myndast
- Mikill vöxtur
- Líffærin myndast
- Hjartað byrjar að slá
- Fóstrin eru þakin fósturfitu
- Fyrstu hárin myndast
- Fóstrin hreyfa sig mikið
- Fóstrin sofa í smá dúrum
- Fóstrin sjúga fingur og kyngja legvatn
- Kynið ákvarðast og er greinanlegt við 12 viku
- Lengd frá hvirfli til ilja við 12 vikur er um 9 sm
- Þyngdin við 12 vikur er um 30 g
Eggið hefur frjóvgast og hröð frumuskipting á sér stað. Fylgjan byrjar að myndast strax á þriðju viku og er full mynduð og farin að starfa á tíundu viku. Fylgjan, sem er einskonar dreifingarmiðstöð, lætur fóstrunum í té bæði næringu og súrefni. Einnig sér fylgjan um að flytja úrgangsefni frá fóstrunum.
Legvatnið myndast snemma á meðgöngu og eykst dag frá degi. Við 10 vikna meðgöngu er það um 30 ml og undir lok meðgöngu er það um 700-1000 ml. Legvatnið gegnir ýmsu hlutverki, m.a. ver það fóstrin fyrir hnjaski og veitir þeim aukið rými til að hreyfa sig og vaxa. Auk þess sér það um að jafna hitastigið umhverfis fóstrin. Legvatnið endurnýjast stöðugt, fóstrin kyngja því og pissa sem stuðlar að eðlilegri hringrás legvatnsins.
Vöxtur er mikill og hraður. Öll líffærin myndast á fyrstu tólf vikunum en eru smá og óþroskuð. Hjarta fóstranna byrjar að slá á fjórðu viku eftir getnað. Hjartsláttur þeirra er hraður, næstum tvöfalt hraðari en hjartsláttur móðurinnar. Húðin er aðlöguð því að vera í vatni. Hún er varin með vaxkenndu efni sem kallast fósturfita. Fósturfitan ver húðina gegn núningi. Fitan þekur húðina alla meðgönguna og veldur því að börnin eru sleip og kámug við fæðingu. Fyrstu hárin myndast um leið og húðin verður fullþroska við u.þ.b. 12 vikur.
Fóstrin eru á sífelldri hreyfingu og sofa aðeins í smá dúrum en vegna smæðar þeirra finnur móðirin ekki fyrir hreyfingunum ennþá. Undir lok þessa tímabils eru þau farin að sjúga fingur og kyngja. Kyn barnanna, hár og augnlitur ákvarðast snemma. Öll fóstur þroskast eins á fyrstu mánuðunum og þar á meðal tvíburar. Höfuð tvíburanna stækka mest í byrjun meðgöngunnar og í þriðja mánuði er höfuðið tæplega helmingurinn af stærð barnanna. Í lok þessa tímabils eru fóstrin orðin fullsköpuð, komin á þau mannsmynd og öll líffærin eru til staðar þó þau séu enn óþroskuð.
Móðirin
- Brjóstin stækka og eru viðkvæm
- Mjólkurkirtlarnir þroskast og broddurinn myndast
- Það þrengist um buxnastrenginn
- Þvaglát tíðari
- Samdrættir í legi
- Togverkir í nára
- Ógleði
- Lyktar og bragðskyn geta breyst
- Svimi og ör hjartsláttur
- Blæðing frá tannholdi
- Blóðnasir
Breytingar í brjóstum byrja strax á fyrstu vikum meðgöngunnar. Brjóstin stækka og eru viðkvæm. Mjólkurkirtlarnir þroskast og broddurinn myndast og það getur lekið úr brjóstunum. Það er farið að þrengjast um buxnastrenginn vegna þess að legið stækkar hratt.
Tíð þvaglát skapast af því að blóðflæði til nýrna hefur aukist og aukinn þrýstingur er á þvagblöðruna vegna stækkandi legs. Það er eðlilegt að finna fyrir samdráttum í leginu og togverkjum í nára, vegna þess hve ört legið stækkar og legböndin lengjast. Samdrættir í leginu eru verkjalausir.
Vegna hormónaáhrifa getur konan fundið fyrir ógleði, aðallega að morgni eða að kvöldi þegar þreytan segir til sín og e.t.v. kastar hún líka upp. Rannsóknir sýna að allt að 50-70% kvenna finna fyrir ógleði á meðgöngunni. Lyktarskyn er næmara á meðgöngunni og bragðskynið getur breyst. Það hefur áhrif á ógleði, fæðuval og löngun.
Breytingar sem verða á blóðrás konunnar á meðgöngu geta valdið því að hún finnur fyrir svima og örum hjartslætti. Blóðmagnið í líkama móðurinnar eykst, það veldur því að allar slímhúðir í líkamanum verða þrútnari og það getur blætt frá tannholdi og jafnvel fær konan blóðnasir af litlu tilefni.
Parið getur upplifað þungunina mjög mismunandi á þessu tímabili. Ef til vill er þungunin óraunveruleg í huga hins verðandi föður meðan hún er stöðug líkamleg upplifun hjá móðurinni.
Lesa meira:
annað tímabil 13-26 vikur
þriðja tímabil 27. vika og fram að fæðingu
Júní 2009. Yfirfarið í júní 2011.
Höfundar: Karítas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.