Bólusetningar á meðgöngu
Bólusetningar á meðgöngu geta verið nauðsynlegar en þær eru ekki allar taldar æskilegar. Alltaf þarf að vega og meta áhættu af bólusetningu á móti ávinningnum og best er að ráðfæra sig við lækni um það í hverju tilviki fyrir sig.
Ef til vill er best að bíða með ferðalög til landa þar sem bólusetningar er þörf, þar til eftir fæðingu.
Bólusetning gegn inflúensu
Þær konur sem heilsu sinnar vegna er ráðlagt að láta bólusetja sig gegn inflúensu ættu að gera það líka á meðgöngu.
Almennt er þó mælt með að bíða með bólusetningu þar til eftir 12. viku. Ekki er þó talið að inflúensubólusetning valdi skaða á neinu tímabili meðgöngunnar.
Bólusetningar og brjóstagjöf
Bólusetning móður og/eða barns kemur ekki í veg fyrir að brjóstagjöf geti haldið áfram.
Karítas Ívarsdóttir, Ragnheiður Bachmann, ljósmæður Miðstöð mæðraverndar september 2007