Kláðamaur

Kláðamaur

Kláðamaur - Upplýsingar til foreldra

Helstu smitleiðir eru við nána snertingu milli manna

Helstu einkenni:

  • Kláði, sérstaklega að nóttu til.
  • Mjóar rauðar rákir á húðinni.
  • Útbrot og afrifur á húð vegna klórs.
  • Einkenni geta komið nokkrum vikum eftir fyrstu sýkingu, en eftir endurteknar sýkingar kemur kláði eftir nokkra daga. Kláðinn getur haldið áfram í nokkrar vikur eftir rétta lyfjameðferð.

Greining:

Greining fer fram hjá lækni.

Meðferð:

  • Hverfur ekki af sjálfu sér og þarfnast því alltaf meðferðar.
  • Lyfjameðferð í samráði við lækni og fylgja leiðbeiningum vel.
  • Venjulega er ein lyfjameðferð árangursrík en þó má endurtaka meðferð eftir 7-10 daga ef þörf er á. 
  • Mikilvægt að bera mýkjandi krem á líkamann daginn eftir meðferð og eftir þörfum.
  • Kláði getur varað í allt að 6 vikur eftir meðferð og því eru oft notuð kláðastillandi lyf samtímis.
  • Mikilvægt að öll fjölskyldan fái samtímis meðferð þó einkenna sé ekki vart.

Ráðleggingar:

  • Þvo föt, handklæði, sængurföt, greiður, bursta og annað sem kemst í snertingu við líkamann úr 50° heitu vatni, minnst 15 mínútur.
  • Þau efni sem ekki má þvo úr svo heitu vatni ætti að setja í lokaðan poka í 2 vikur.
  • Gott að klippa neglur hjá börnum með smit og ef til vill láta þau sofa með hanska.
  • Daginn eftir meðferð má barn fara aftur í skólann.

Hvað er hægt að gera til að forðast kláðamaur?

Gott að minna börn á að fá ekki lánuð föt, trefla og þess háttar hjá öðrum.

Fylgjast með einkennum á þeim svæðum sem kláðamaurinn herjar á, það er:

  • Milli fingra, greipar og handarbök
  • Úlnliði og olnboga
  • Undir höndunum
  • Húðin umhverfis naflann
  • Geirvörtur kvenna
  • Kynfæri karla
  • Innanverð læri og mitti

Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;