Heimahjúkrun fyrir Reykjavík og Seltjarnarnes var flutt frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar 1. janúar 2009 og er um 3 ára tilraunaverkefni að ræða.
Miðstöð heimahjúkrunar er því ekki lengur til en starfsmenn hennar munu sinna sínum verkefnum áfram undir merkjum "Heimaþjónustu Reykjavíkur". Lagt er upp með að skjólstæðingar heimahjúkrunar finni sem minnst fyrir þessum breytingum nema í formi öflugri og heildstæðari þjónustu þegar fram líða stundir.
Heimaþjónusta Reykjavíkur er staðsett að Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Nýtt símanúmer er 411-9600 og netfangið er: heima@reykjavík.is.
Heimahjúkrun í Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði er sinnt frá heilsugæslustöðvum í viðkomandi bæjum en Heimaþjónusta Reykjavíkur sinnir næturþjónustu í þessum bæjum og einnig kvöld- og helgarþjónustu í Mosfellsumdæmi.
Hér má lesa um hlutverk og þjónusturamma heimahjúkrunar.
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er veitt frá eftirfarandi stöðvum og þar má fá nánari upplýsingar um þjónustuna: