Kláði

Kláði

Ef kláði er til staðar er ástæða til þess að ræða það við ljósmóður eða lækni.

Kláði er algengur á meðgöngu. Oftast er hann vægur og meinlaus. Hann getur verið staðbundinn eða um allan líkamann. Algengt  er að konan finni aðallega fyrir kláða á kviði, bringu og á útlimum og stundum sjást útbrot eða roði þar sem kláðinn er.

Helstu orsakir kláða:

  • Þurr húð.
  • Tog á húðinni og aukið blóðflæði um húð á meðgöngu.
  • Húðsjúkdómar, t.d. kláðabólur á  meðgöngu, exem og psoriasis.
  • Sýkingar í húð, t.d. kláðamaur eða sveppasýkingar.
  • Kláði við endaþarm vegna gyllinæðar.
  • Skordýrabit.
  • Sólbruni.
  • Ofnæmi, t.d. fyrir snyrtivörum, lyfjum, ýmsum efnum og málmum (í skartgripum).
  • Gallstasi á meðgöngu.

Kláði getur verið merki um alvarlegra ástand sem kallast gallstasi á meðgöngu en það er sjaldgæfur sjúkdómur sem hefur áhrif á starfsemi lifrarinnar.

Talið er að tíðnin sé um 1-2%. Oft er um mikinn kláða að ræða. Þó getur hann verið  mismikill og byrjar oft í lófum og iljum en getur verið dreifður um líkamann,  jafnvel á augnlokum og í munnholi. Önnur einkenni gallstasa geta verið svefntruflanir (vegna kláðans) og í alvarlegri tilvikum gula, dökkt þvag og niðurgangur/fituskita (ljósar eða gráar hægðir).

Ef kláði er til staðar eða ef hann versnar er mikilvægt að láta vita af því í meðgönguverndinni svo hægt sé að staðfesta eða útiloka að um gallstasa sé að ræða og veita viðeigandi meðferð ef þörf er á.

Nokkur ráð við kláða:

  • Nota kælikrem eða rakakrem sem bera má á húð nokkrum sinnum á dag, alltaf eftir bað og fyrir svefn.
  • Klippa neglur til að minnka líkur á húðklóri og nota frekar lófana til að nudda húðina þar sem kláðinn er mikill.
  • Koma í veg fyrir svitamyndun með því að klæðast fötum úr náttúrulegum efnum t.d. bómull eða silki fremur en gerviefnum.
  • Klæðast víðum fötum fremur en þröngum.
  • Sofa með þunna ábreiðu fremur en þykka ábreiðu eða dúnsæng.
  • Sofa við gott loft og ekki mikinn herbergishita.
  • Fara í volga/svala sturtu eða bað fremur en of heit böð.
  • Takmarka daglega notkun sápu við handarkrika og nára og nota milda, lyktarlausa og ofnæmisprófaða sápu.
  • Nota mild þvottaefni og skola vel allan þvott sem kemst í snertingu við húð.
  • Forðast kaffi og aðra heita drykki.
  • Kláðastillandi lyf t.d. Tavegyl eða Polaramin skv. læknisráði.
  • Svefnlyf skv. læknisráði ef kláði truflar nætursvefninn.

Kláði (pdf-skjal)


Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður og Þóra Steingrímsdóttir fæðingalæknir mæðravernd Þróunarstofu.
Heimildir - Kláði:
1. Fazio, S.B.  Pruritus. Official Reprint from UpToDate® maí 2008.  Sótt í október 2008
2. Glantz, A., og fleiri: Intrahepatic cholestasis of pregnancy: A Randomised Controlled Trial Comparing Dexamethasone and Ursodeoxycholic Acid. Hepatology 2005; 42: 1399-1405
3. Glantz, A., og fleiri: Intrahepatic cholestasis of pregnancy. Relationships between bile acid levels and fetal complication rates. Hepatology 2004;40:467-74.
4. Lammert, F. og fleiri: Intrahepatic cholestasis of pregnancy: molecular pathogenesis, diagnosis and management. Journal of Hepatology 2003; 33: 1012-1021
5. NHS choices. http://www.nhs.uk/Conditions/Itching/Pages/Treatment.aspx?url=Pages/What-is-it.aspx Sótt í október 2008.
6. Rapponen, A., og fleiri: Intrahepatic cholestasis of pregnancy As an Indicator of Liver and Bilary Diseases: a Population-Based Study. Hepatology 2006; 43: 723-728
7. RCOG Obstetric cholestasis (itching liver disorder): information for you. http://www.rcog.org.uk/resources/public/pdf/obstetric_cholestasis_pi0407a.pdf Sótt í október 2008
8. Sandbjerg 2008. Leverbetinget graviditetsklöe. Danskar leiðbeiningar
9. Yannick, B. Intrahepatic cholestasis of pregnancy. Official Reprint from UpToDate® maí 2008. 
Sótt í október 2008
10. Þóra Steingrímsdóttir ofl: 2007 Gallastasi á meðgöngu Vinnuleiðbeiningar. Miðstöð mæðraverndar. Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins.


 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;