Fæðingarkvíði

Fæðingarkvíði

Flestar konur velta því fyrir sér hvernig fæðingin muni ganga, hvort hún verði erfið eða sársaukafull og hvernig þær munu ráða við hana. Sumar konur hafa hins vegar verulegar áhyggjur og kvíða fæðingunni eða hræðast hana. Kvíðinn og hræðslan geta tengst andlegri vanlíðan, reynslu eða upplifun fyrr á ævinni eða fyrri fæðingu.

Áhyggjurnar, kvíðinn eða hræðslan skyggja á tilhlökkunina vegna komu barnsins og geta einnig beinst að því hvort allt verði í lagi með barnið.  Líðanin getur haft áhrif á daglegt líf og samskipti við maka.



Hinn verðandi faðir getur líka fundið fyrir kvíða fyrir fæðingunni. Hann getur haft áhyggjur af því hvernig fæðingin muni ganga og hvernig konunni og barninu muni líða.

Upplýsingar um valkosti og bjargráð í fæðingu geta hjálpað við að taka ákvarðanir og aukið öryggistilfinningu. Í meðgönguverndinni er bent á fræðsluefni sem við á. Þar gefst einnig tækifæri til umræðna og spurninga ásamt því að ræða líðan, óskir og væntingar. Svo er mikilvægt að verðandi foreldrar ræði saman um líðan sína, væntingar og óskir.

“Ljáðu mér eyra” kallast  þjónusta við foreldra með erfiða reynslu af barnsfæðingu. Konum/foreldrum er boðið að koma í viðtöl þeim að kostnaðarlausu. Fyrst og fremst er lögð áhersla á að leyfa foreldrum að tjá sig um reynslu af fyrri fæðingu. Markmið þjónustunnar er að létta á óþægilegri reynslu, stuðla að jákvæðri upplifun foreldra af meðgöngu og fæðingu og veita ráðgjöf.

Viðtöl fara fram á Kvenna- og barnasviði Landspítala. Tímapantanir alla virka daga frá kl. 8:00-16:00 í síma 543-3265 eða 543-3266.


Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.


 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;