Hvaða meðferð hentar mér?

Hvaða meðferð hentar mér?

Meðferð við andlegri vanlíðan á meðgöngu og á fyrsta ári eftir fæðingu getur falið í sér sálfræðimeðferð og/eða lyfjameðferð.

Mikilvægt er að ræða kosti og galla meðferðar sem og kosti og galla þess að þiggja ekki meðferð.

Lyfjameðferð á meðgöngu getur haft áhættu í för með sér fyrir ófædda barnið.  Ef lyfjameðferð er hins vegar hætt eða afþökkuð getur það leitt til alvarlegri veikinda sem geta einnig haft áhrif á ófædda barnið. Það er margt óljóst þegar rætt er um áhættu lyfjameðferðar og veikinda. Við ákvörðun um lyfjameðferð þarf að meta hversu mikil áhætta fylgir lyfjameðferðinni og hversu líklegt það er að veikindin versni séu lyf ekki notuð.


Hvíld, nægur svefn, góð næring og regluleg hreyfing bætir líðan og getur komið i veg fyrir langvarandi vanlíðan.

  • Þínar persónulegu þarfir eru mikilvægar og það þarf að taka tillit til þeirra í meðferðinni.
  • Þú hefur rétt á að fá góðar upplýsingar og taka þátt í að ákveða  meðferð og meðferðaráætlun.
  • Gagnkvæm virðing þarf að vera milli þín og meðferðaraðila.
  • Upplýsingar ættu að fela í sér hvers er að vænta af meðferðinni; mögulegan árangur og áhættuþætti fyrir þig og barnið þitt.
  • Þú átt að fá tækifæri til að spyrja spurninga og geta skipt um skoðun eftir því sem líðan þín breytist eða aðstæður.
  • Þínar óskir eru alltaf mikilvægar og meðferðaraðilinn ætti að virða þær.
  • Ef þú ert ósammála meðferðinni áttu að láta vita.

Stundum getur komið upp sú staða að þeir sem standa þér næst (fjölskylda, vinir eða meðferðaraðili) eru ekki sammála þér varðandi meðferð og telja annan kost/aðra leið betri fyrir þig og barnið þitt.

Þú gætir viljað spyrja meðferðaraðilann eftirfarandi spurninga:

  • Getur þú gefið mér nánari upplýsingar um andlega vanlíðan á meðgöngu og á fyrsta ári eftir fæðingu barns?
  • Hvaða meðferðarúrræði eru í boði?
  • Getur þú gefið mér upplýsingar um ávinning og mögulega áhættu lyfjameðferðar, fyrir mig og barnið?
  • Getur þú gefið mér upplýsingar um ávinning og mögulega áhættu þess að þiggja ekki lyfjameðferð, fyrir mig og barnið?
  • Eru til stuðningshópar sem gætu hjálpað mér?
  • Eru til skriflegar upplýsingar sem geta hjálpað mér og mínum nánustu?

Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.



Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;