Andleg vanlíðan

Andleg vanlíðan

Andleg vanlíðan kvenna á meðgöngu felur í sér algenga geðræna kvilla eins og þreytu, streitu, kvíða og þunglyndi. Þessir kvillar geta haft neikvæð áhrif á daglegt líf og lífsgæði auk þess að hafa áhrif á heilsu, þroska fóstursins og þroskamöguleika barnsins eftir fæðingu. Andleg vanlíðan getur einnig haft neikvæð áhrif á samskipti við maka og nánustu fjölskyldu. Talið er að um 10-15% kvenna eigi við andlega vanlíðan að stríða á meðgöngu.


Ef þú svarar eftirfarandi spurningum játandi ættir þú að ræða líðan þína við ljósmóðurina í meðgönguverndinni:

  • Hefur þú síðastliðinn mánuð oft fundið fyrir leiða, voneysi eða depurð?
  • Hefur þú síðastliðinn mánuð oft fundið fyrir áhugaleysi og sjaldan fundið fyrir tilhlökkun og gleði?

Einkenni vanlíðunar eru þreyta, áhugaleysi, eirðarleysi, vanmáttarkennd, óákveðni og léleg einbeiting ásamt breytingum á matarlyst og svefni. Þreytu er lýst sem orkuleysi sem lagast ekki við hvíld eða svefn og er ekki í beinu samræmi við líkamlega vinnu eða álag.

Sektarkennd er einnig algeng og hugsanir um dauðann geta gert vart við sig. Áhyggjur og kvíði beinast oft að fósturmissi, heilbrigði barnsins og fæðingunni sjálfri. Konur sem eiga við andleg vandamál að stríða áður en þær verða barnshafandi eru líklegri til þess að verða andlega veikar á meðgöngu og fyrsta árið eftir fæðingu en á öðrum tíma í lífi sínu. Kona sem finnur fyrir andlegri vanlíðan á meðgöngu er líkleg til að finna einnig til vanlíðunar eftir fæðingu.

Yfirþyrmandi og sífelld vanlíðan, depurð, hjálparleysi og vonleysi geta haft í för með sér þrekleysi og líkamlega verki.

Ef þú glímir við andlega vanlíðan á meðgöngu eða á fyrsta árinu eftir fæðingu ættirðu að leita þér aðstoðar/meðferðar sem fyrst.

Það er mikilvægt að þær konur sem taka geðlyf ráðfæri sig við lækni eða ljósmóður áður en þær ákveða að breyta eða hætta lyfjatöku.

Yfirfarið: júní 2009.
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður mæðravernd Þróunarstofu.


 

 

 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;